Glimrandi lambaprime úr austri – skemmtilega öðruvísi

Marinerað lambaprime með myntusósu

  • Servings: 4-5
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Lambaprime er af og til helgarmatur á heimilinu og þá finnst mér gaman að gera nokkrar útfærslur af því.  Það getur verið erfitt að grilla kjötið þar sem það er fitusprengt og vill stundum kvikna í því.  Mér finnst það gerast frekar þegar ég kaupi lambaprime í tilbúinni marineringu og vil því frekar gera mína eigin marineringu eða bara salta og pipra.  Þessi útgáfa er ein af þeim sem ég hef verið að prófa mig áfram með.  Upplagt að leggja kjötið í marineringu daginn áður og geyma það í kæli yfir nótt.  Chutneysósan er kannski ekki mjög barnvæn en hún er fersk og skemmtilega öðruvísi og passar vel við þessa marineringu.  Glimrandi góður réttur sem gaman er að bjóða upp á öðru hvoru.

 

Hráefni

Kjöt og marinering

  • 800 g lambaprime
  • U.þ.b. 20 g engifer – skorið í grófa bita (ef ég nota lífrænt engifer læt ég hýðið fylgja með)
  • 4 hvítlauksrif – skorin í grófa bita
  • ½ grænn chilipipar – með fræjum
  • 1 msk olía
  • ½ tsk fennel fræ
  • ¼ tsk kanill
  • 1 dl rjómi

 

Til penslunar

  • 2 msk limesafi
  • 1 tsk chilliduft
  • 1 tsk sumac
  • ½ tsk múskat
  • 1 tsk grófmalaður svartur pipar
  • Saltflögur

 

Chutneysósa

  • Tæplega 1 dl fersk mynta
  • 1 dós grísk jógúrt eða sýrður rjómi
  • 1 msk hunang
  • 1 grænn chillipipar eða jalapeno (með fræjum)
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tsk cumin
  • ½ tsk sumac
  • 2 msk sítrónusafi
  • 1 tsk nigella fræ (má sleppa)

 

Verklýsing

Marinering

  1. Engifer, hvítlaukur, grænn chilipipar og olía sett í matvinnsluvél – maukað gróft og sett í skál sem rúmar líka kjötið
  2. Afgangi af hráefninu (fennel fræ, kanill og rjómi) bætt við í skálina – blandað saman
  3. Kjötið sett í skálina og blandað saman við marineringuna
  4. Lok/plastfilma sett yfir og kjötið látið marinerast í 3 – 4 klukkustundir eða í kæli yfir nótt (ágætt að snúa kjötinu við einu sinni en ekki nauðsynlegt).  Ath. best að taka kjötið út eitthvað áður svo að það nái stofuhita áður en það er sett á grillið

 

Chutneysósa

  1. Allt hráefni sett í matvinnsluvél eða öflugan blandara – maukað saman

 

Til penslunar

  1. Öllu hráefni blandað saman í skál og penslað á kjötið rétt áður en grillið er hitað
  2. Varðandi steikinguna: Það er smekksatriði hversu mikið kjötið á að vera steikt.  Mér finnst gott að hafa það rauðleitt en samt ekki of lítið út af fituröndunum.  Steikingartíminn er einnig mismunandi þar sem kjötbitarnir geta verið misþykkir.  Við grillum kjötið á frekar háum hita á báðum hliðum.  Svo er hitinn lækkaður aðeins eða við látum kjötið á efri grindina í smá stund.  Þegar kjötið er tekið af grillinu er gott að láta það jafna sig aðeins
  3. Einnig er smekksatriði hvernig kjötið er borið fram.  Hægt er að bjóða upp á heila bita eða skera í hæfilega stóra bita fyrir hvern og einn. Mér finnst best að skera kjötið niður í þunnar sneiðar

 

Meðlæti

T.d. ofnsteiktar kartöflur, hrísgrjón, grænmetisgratín, salat eða það sem hverjum og einum finnst best.

 

Marinering

 

 

Til penslunar

 

Chutneysósa


Kjötið penslað

Kjötið grillað

 

 

Gott að láta kjötið jafna sig aðeins áður en það er skorið

 

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*