Home » Feikigóð fiskisúpa

Feikigóð fiskisúpa

Einföld og góð fiskisúpa

  • Servings: 4
  • Difficulty: miðlungs
  • Prenta

Uppruni

Þessi uppskrift er bæði þægileg og einföld.  Hún hefur verið að þróast en hér er komin endanleg útgáfa.  Voða góð og saðsöm súpa sem yljar á köldum degi.   

ATH. Með því að saxa fínt laukinn, hvítlaukinn og tómatana er óþarfi að mauka súpuna í lokin.  Bara háð því hvað hverjum og einum finnst best.

 

Forvinna

Upplagt að byrja á súpunni fyrr og eiga bara eftir að hita hana upp og setja fiskbitana ofan í.

Hráefni

  • 1 gulur laukur – saxaður
  • 2 – 3 hvítlauksrif – saxa/pressa
  • 30 g smjör
  • 2 tsk turmerik
  • 1 tsk karrý
  • 5 dl vatn
  • 2 tómatar – saxaðir/maukaðir
  • Aðeins af sætu eins og t.d. hunang (1 tsk) eða ferskur ananas (50 g) – skorinn í bita
  • 1 – 2 tsk niðursoðið kapers – saxað
  • 3 dl matreiðslurjómi
  • 1 dós kókosmjólk (400 ml)
  • 1 tsk hvítvínsedik
  • 1 – 2 dl hvítvín
  • 1 tsk grænmetis- eða fiskikraftur
  • Sítrónupipar
  • 1 – 1½ kg fiskur – skorinn í litla bita. Gaman að hafa sitt lítið af hverju eða bara það sem hver og einn vill
  • Nýmalaður pipar og saltflögur
  • Fallegt að skreyta með ferskri steinselju

Verklýsing

  1. Laukur og hvítlaukur steiktir á vægum hita í smjörinu – karrý og túrmeriki bætt við. Ágætt að steikja í pottinum sem á að nota fyrir súpuna
  2. Tómötum, kapers og sætunni bætt við ásamt vökvanum (vatni, kókosmjólk, rjóma, hvítvínsediki og hvítvíni). Grænmetis- eða fiskikrafti bætt við og saltað og piprað.  Látið krauma í 20 mínútur á vægum hita – ef hráefnið er gróft saxað er gott að mauka súpuna með töfrasprota
  3. Súpan hituð að suðu og fiskbitarnir settir ofan í.  Slökkt á hellunni og látið standa í nokkrar mínútur

Á vel við með: Nýbökuðu hvítlauksbrauði eða einföldu súrdeigsbrauði.

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*