Ný útgáfa af beef tartar
Uppruni
Þá kemur enn ein útgáfa af einu af mínu uppáhalds … nautatartar. Ég veit að það er ekki allra en með gæða hráefni er þetta bara æði. Þennan rétt er frábært að bera fram sem forrétt …en eins og áður er eins gott að það sé kjötfólk sem er að setjast að borðum.
Gott að hafa í huga:
- Hreinlæti – mjög mikilvægt að áhöld og hendur séu hreinar þegar verið er að handfjatla hrátt kjöt
- Nota gæðakjöt – best að fara til kjötmannsins og kaupa nautafile eða nautalundir
- Geyma í kæli/frysti – getur verið gott að skella kjötinu aðeins í frystinn … stundum auðveldara að skera kjötið niður hálffrosið
- Geymist í kæli þar til stuttu áður en rétturinn er borinn fram
- Ekki fyrir ófrískar konur
Hugmyndir á diskinn [ingredi- ents title=“Hráefni“]Hráefni
Verklýsing
- Kjötið er skorið í smátt og blandað saman við hin hráefnin
- Kúlur myndaðar eða ef þú átt lítið hringform er gott að nota það til að mynda fallegan hring – magnið er háð hverjum og einum
ATH. Útfærsla getur verið mismunandi. Ef ég á klettasalatspestó inni í kæli nota ég það til að skreyta diskinn en það má leika sér með kartöflusnakk, ristað brauð eða kex …. eða bara sleppa því og setja eggjarauðu á toppinn.





