Flottur forréttur
Uppruni
Fékk hugmyndina úr erlendu blaði en bjó til mína útgáfu af réttinum. Flottur forréttur sem gaman er að bjóða upp á.
Forvinna
Best að taka hörpuskelina úr frysti daginn áður og láta hana þiðna í rólegheitum í kæli yfir nótt. Brenndu hollandessósuna má búa til fyrr um daginn.
Hörpuskel Brennd hollandessósa Hugmynd að skrautiHráefni
Verklýsing
Brennd hollandessósa
- Smjör er brætt á frekar háum hita. Þegar það er bráðnað kraumar í því og það myndast hálfgerðir kristallar á yfirborðinu og síðan froða. Á þeim tímapunkti fer að myndast litur í botninum – þá er potturinn tekið af hellunni. Smjörið má alls ekki brenna en það er betra að það komi smá litur á botninum í pottinum – ef þessi ljósbrúna skán, sem myndast, er látin fylgja með kemur örlítill sætur og góður karamellukeimur af smjörinu. Ef liturinn í botninum er mjög dökkur er betra að sleppa að nota hann
- Eggjarauðan þeytt ásamt sítrónunni og brennda smjörinu hellt í rólega – lítið í einu. Saltað
Hörpuskel
- Hörpuskelin sett í skál ásamt hunangi og olíu. Ef hitað er á pönnu er mikilvægt að pannan sé vel heit þegar hörpuskelin er sett á hana. Ef hörpuskelin er grilluð er mikilvægt að grillið sé orðið vel heitt þegar hún er sett á. Steikt/grillað í 1 – 2 mínútur á hvorri hlið
Samsetning
- Slumpur af sósu settur í litla skál eða á forréttardisk og hörpuskelin lögð ofan á. Fallegt að bera fram með litlum salatblöðum og strá sumac yfir í lokin













