Home » Perlugott meðlæti

Perlugott meðlæti

Perlubygg sem passar með nánast öllu

  • Servings: 4
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Hér kemur uppskrift að meðlæti sem passar súper vel með kjöti, fiski eða grænmetisréttum.  100% hægt að mæla með þessari góðu uppskrift.

ATH. Varðandi kryddjurtirnar þá getur hver og einn sett blöndu af því sem er til eða það sem er mest í uppáhaldi.  Einnig má líka nota þurrkað en þá er sett minna magn af því. T.d. er hægt að nota bara steinselju og svo 1 – 2 msk af þurrkuðum kryddjurtum með.

Forvinna

Perlubyggið má sjóða daginn áður. 

Hráefni

  • 2 dl íslenskt perlubygg – (2 dl perlubygg + 5 dl vatn)
  • 2 litlir gulir laukar – skornir í þunnar sneiðar
  • 1 msk smjör
  • ½ tsk cumin
  • 50 g pistasíuhnetur
  • 2 vorlaukar – skornir í þunnar sneiðar
  • ¼ – ½ af rauðum eða grænum chillipipar – skorinn smátt
  • 30 – 35 g klettasalat
  • Salt og pipar

Dressing

  • 30 g af ferskum kryddjurtum eins og steinselja, basil, kóriander og/eða mynta – saxað smátt
  • ½ – ¾ dl olía

Verklýsing

  1. Perlubygg sett í pott ásamt vatni – hitað að suðu og látið sjóða á meðalhita í 20 – 25 mínútur (eftir suðu þarf stundum að hella aðeins af vatninu sem verður eftir)
  2. Laukur steiktur í smjöri á vægum hita þar til hann verður fallega gulur – cumin bætt við og skerpt á hitanum í stutta stund
  3. Öllum hráefnunum blandað saman í skál
  4. Dressing:  Olíu og söxuðu kryddjurtunum blandað saman og hellt yfir salatið.  Saltað og piprað

 

Geymsla: Geymist ágætlega í 1 – 2 daga í kæli.

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*