Home » Bakaður rabarbari með kardimommukurli

Bakaður rabarbari með kardimommukurli

Rabarbari með kurli og rjóma

  • Servings: 4 - 5
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Hér kemur eftirréttur sem upplagt er að bjóða upp á þegar rabarbarinn er upp á sitt besta.  Ef til eru stilkar frá sumrinu í frystinum er gott að ylja sér á þessum eftirrétti  í skammdeginu.  Sérstaklega fallegur eftirréttur sem borinn er fram með þeyttum rjóma, vanillusósu eða vanilluís.

Forvinna

Hægt er að búa sér í haginn með því að laga kardimommukurlið fyrr um daginn.

Hráefni

Kardimommukurl

  • 50 g smjör
  • 2 dl hafragrjón
  • ½ dl sykur
  • 1 msk hunang
  • ½ tsk salt
  • 1 tsk steytt kardimomma

Rabarbar

  • 500 g rabarbari
  • ¼ dl hrásykur
  • ½ tsk vanilluduft
  • 3 msk smjör – u.þ.b. 45 g
  • 1 msk sítrónusafi

Meðlæti

  • Rjómi /vanilluís/vanillusósa

 

Verklýsing

  1. Ofninn stilltur á 175°C (yfir- og undirhiti)
  2. Kurl: Smjörið blandað saman við þurrefnið (ef smjörið er hart má setja allt í ofnskúffu með bökunarpappír eða eldfast mót og hræra betur saman þegar smjörið hefur bráðnað)  – bakað ofarlega í ofinum í 12 mínútur – hræra í öðru hvoru.  Passa að hræra í kurlinu þegar það kemur úr ofninum svo það loði ekki allt saman. Látið kólna – þegar sykurinn og hunangið bráðnar loðir kurlið vel saman.  Þess vegna er betra að hræra vel í því
  3. Rabarbari hreinsaður og skorinn í 8 – 10 cm langar lengjur. Þær settar í ofnskúffu (gott að hafa bökunarpappír undir) og sykri stráð yfir ásamt vanilludufti.  Sítrónusafa hellt yfir og smjörklípur settar hér og þar. Bakað í miðjum ofninum í 20- 30 mínútur þar til rabarbarinn mýkist.  Gott að ausa vökvanum, sem myndast, öðru hvoru yfir
  4. Samsetning: 3 – 4 rabarbaralengjur settar á eftirréttadisk og kurli dreift yfir ásamt þeyttum rjóma/vanillusósu eða vanilluís

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*