Vanillusósa
Uppruni
Í Svíþjóð er vanillusósa mikið notuð í eða með bakkelsi. Þar er auðvelt að nálgast hana tilbúna í búðum en svo er alls ekki flókið að búa til sína eigin vanillusósu. Hún geymist vel í kæli og upplagt að eiga til að bjóða upp á í stað rjóma.
Hráefni
Verklýsing
- Rjómi og sykur sett í pott. Vanilustöngin skorin langsum og kornin skafin úr. Stöngin og kornin sett í pottinn og suðan látin koma upp. Vanillustöngin tekin upp úr og upplagt að skafa aðeins betur innan úr henni
- Eggjarauðurnar settar í skál og hrært í þegar heitum vanillurjómanum er hellt yfir
- Blöndunni er hellt aftur í pottinn og hrært stöðugt í á meðan hitað er upp að suðu. Um leið og blandan nálgast suðu fer hún að þykkna. Þegar suða er að fara að myndast er potturinn tekinn af hellunni (ekki láta hana sjóða) og halda áfram að hræra. Sósan látin kólna – gott að hafa lokið á svo ekki myndist skán













