Grautur bæði fyrir fullorðna og börn
Uppruni
Hér kemur útgáfa af rabarbaragraut sem er sykurminni en þær sem boðnar voru upp á í gamla daga. Mér finnst persónulega betra að hafa minni sykur en auðvitað má auka sykurmagnið ef þurfa þykir. Grauturinn er bæði ferskur og fallegur sem eftirréttur og býður upp á ýmsa möguleika. Skemmtilegt að bera hann fram í litlum skálum með vanillusósu eða rjóma (þeyttum/óþeyttum) og skreyta svo með ögn af granóla eða múslíi.
Forvinna
Grauturinn geymist vel í kæli og má því búa hann til nokkrum dögum áður.
Hráefni
Verklýsing
- Rabarbarinn skolaður og skorinn í bita – settur í pott ásamt afganginum af hráefnunum og suðan látin koma upp. Látið krauma í 10 – 15 mínútur þar til rabarbarinn er vel soðinn. Ágætt að hræra í reglulega svo allir bitarnir maukist
- Látið kólna og sett í kæli en þannig geymist hann best. Sumum finnst líka gott að borða hann volgan










