Súrdeigsbrauð - svo einfalt og gott
Uppruni
Nú er sú staða komin upp að Drífa dóttir mín hefur í færðingarorlofi sínu tekið fram úr mér í súrdeigsbakstri. Í stað þess að baka sjálf hef ég vanið komur mínar til hennar í ilmandi og nýbakað súrdeigsbrauð. Brauðið hennar er alveg sérstaklega gott en hún er búin að koma sér upp ákveðnu kerfi sem ég bað hana um að fylgja mér í gegnum. Hér kemur hennar leið. Ég er með margar útgáfur af súrdeigsbrauðum en þessi er klárlega í fyrsta sæti í einfaldleika. Mæli með að kíkja á myndbandið hér fyrir neðan. Súrdeigsbakstur þarf alls ekki að vera flókinn.
Tímahugmyndir: Ef þú ert með virkan súr má gera ráð fyrir að deigið þurfi 6 – 7 klukkustundir til að hefast. Upplagt að leggja í það að kvöldi og eiga deig sem er tilbúið í ofninn um morguninn. Einnig má leggja í brauð fyrir hádegi til að hafa með kvöldmatunum.
Forvinna
Alltaf gott að fríska súrinn við nokkrum klukkustundum áður en lagt er í brauðið.
Hráefni
- 350 g vatn (ekki ískalt og alls ekki heitara en 37°C)
- 100 – 120 g súrdeigsgrunnur
- 500 g manitoba hveiti
- 10 g salt
- 20 g vatn
Verklýsing
- Gott að virkja súrinn með hveiti og vatni – láta hann standa aðeins
- Vatnið sett í skál og súr hellt ofan í
- Hveiti bætt við og blandað saman með sleikju – látið standa í 15 – 20 mínútur
- Salt og vatn sett út í og höndin notuð til að hnoða deigið svo að saltið blandist saman við. Lok eða plastfilma sett á skálina og fundinn staður þar sem er hlýtt
- Eftir 6 – 7 klukkustundir ætti deigið að hafa nær tvöfaldast þar sem loftbólur eru sjáanlegar (ef svo er ekki þarf deigið lengri tíma). Deigið látið falla á borðplötu – ágætt að láta það standa í 20 mínútur
- Ofninn stilltur á 250°C (yfir- og undirhiti) – pottur sem þolir hita, eins og t.d. Hönnupottur, látinn hitna með ofninum
- Þrískiptingin gerð og kúla mótuð – látið standa og jafna sig aðeins. Sjá myndband
- Kúlan sett í heitan pottinn og skorið djúpt í deigið – sjá myndband. Lokið sett á og látið bakast í 50 mínútur
Getur deig ofhefast? Já en með tímanum er hægt að læra inn á hvenær deigið er mátulega hefað. Þegar deigið er t.d. ofhefað má gera ráð fyrir minni hefingu í bakstrinum. Ef deigið er alltof mikið hefað getur bragðið líka breyst. Svo er bara að muna að hafa gaman og ekkert stress. Þú getur stjórnað ferlinu – dregið úr hefingunni eða flýtt henni.
ATH. hiti flýtir fyrir hefingu. T.d. ef það kemur mikill hiti frá ofninum undir gluggakistunni má gera ráð fyrir styttri tíma og öfugt. Gott að setja skálina þar sem gólfhiti er eða láta sólina skína á hana. Ef þú vilt nota lengri hefunartímann er óþarfi að leita að heitum stað. Önnur leið til að hægja á hefingunni er að setja skálina inn í kæli en passa að taka hana út tímanlega svo að deigið nái stofuhita.
















