Súpa með ofnbökuðu grænmeti og fetaosti
Uppruni
Hér kemur uppskrift úr smiðju Hebu. Súpan er einföld í vinnslu og svo spillir bragðið ekki fyrir.
Forvinna
Súpuna er upplagt að búa til áður – hún er alls ekki síðri eftir að hafa staðið í kæli yfir nótt.
Hráefni
- 150 g fetaostur
- 1½ – 2 heilir hvítlaukar – skorið ofan af þeim svo að auðveldara sé að kreista þá
- 500 g litlir tómatar (má einnig nota stóra) – skornir í tvennt
- 1½ gulur laukur – hýðið tekið af og skorinn í tvennt
- 2 rauðar paprikur – skornar í tvennt og fræhreinsaðar
- ½ l grænmetissoð (½ l vatn og 1 msk grænmetisduft)
Meðlæti og skraut
- 4 – 5 sneiðar beikon og rósmarin ofan á
- Rauðbeðuduft – má sleppa
- Ostabrauð
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 180°C (blásturstilling)
- Hráefnum raðað í ofnskúffu með bökunarpappír – bakað í 20 mínútur eða þar til paprikan fær á sig lit
- Hýðið af paprikunni tekið af og hvítlaukurinn kreistur. Paprikan og hvítlaukurinn settur í öflugan blandara ásamt lauknum, tómötunum og fetaostinum – maukað vel saman
- Beikonið sett á bökunarpappír og eldað í ofninum á meðan súpan er sett í pott og hituð
- Eftir 10 mínútur er gott að snúa beikoninu við. Þegar það hefur tekið á sig góðan lit er það tekið út og lagt á eldhúspappír (sem sýgur í sig eitthvað af heitri fitunni). Beikonið skorið niður í strimla og blandað saman við ferskt eða þurrkað rósmarín
Framreiðsla : Súpunni ausið í djúpan disk og aðeins af beikonkurli sett í miðjuna. Ef til er rauðbeðuduft er fallegt að sigta því yfir súpuna. Borið fram með nýbökuðu brauði eins og hvítlauksbrauði, kraumandi ostabrauði eða hituðu brauði með osti á milli.
Geymsla: Súpan geymist vel nokkra daga í kæli í lokuðu íláti. Hún verður jafnvel betri.












