Eggjakaka með kúrbít
Hugmyndin
Þegar börn eru undir 1 árs og að byrja að læra að borða þá er mikilvægt að gefa þeim fjölbreytta fæðu. Stundum getur verið heilaleikfimi að finna leiðir til að matreiða fjölbreyttu fæðuna. Eggjakaka er frábær réttur til að prófa sig áfram með í eldamennskunni og nýta um leið alls kyns ný hráefni.
Geymsla
Úr einni uppskrift verður eggjakakan á stærð við matardisk. Hægt er að geyma afganginn í kæli í um 2-3 daga og er tilvalinn í allar máltíðir fyrir barnið daginn eftir.
Hráefni
- 60-80 grömm kúrbítur
- 1 egg
- ½ teskeið cumin (má sleppa)
- Laukduft á hnífsbroddi (má sleppa)
- Afgangar af öðru grænmeti úr ísskápnum eins og tómatar, soðið brokkolí, soðnar gulrætur (má sleppa)
Verklýsing
- Egg sett í skál og hrært vel saman með gaffli eða pískara
- Kúrbíturinn rifinn niður með fínu rifjárni og settur á eldhúspappír
- Eldhúspappírinn vafinn um rifna kúrbítinn og síðan er allur vökvinn kreistur úr
- Kúrbítnum blandað vel saman við eggjahræruna
- Kryddum bætt við og hrært
- Afgangi úr ísskápnum bætt við ef það er notað
- Olía sett á pönnu og hituð
- Þegar olían er orðin nógu heit er blöndunni hellt á pönnuna
- Eftir um 2-3 mínútur er blöndunni snúið við með stórum spaða
- Eftir um 2-3 mínútur er eggjakakan færð yfir á disk
- Skorið í ræmur og sett fyrir framan barnið. Auðvitað þarf að muna að fylgjast með barninu á meðan það borðar










