Home » Skipulag fyrir barnaafmæli

Skipulag fyrir barnaafmæli

Skipulag fyrir barnaafmæli

Hugmyndin

Það er alveg hægt að halda barnaafmæli fyrir 20-40 manns án þess að kaupa tilbúna rétti. Það þarf bara gott skipulag og auðvitað frábært ef maður hefur gott fólk í kringum sig sem getur veitt auka hönd. Það er bæði ódýrara og meiri samvera að útbúa alla rétti sjálfur. Þegar við héldum upp á fyrsta barnaafmælið fyrir soninn þá var það mjög krefjandi þar sem ég átti erfitt með að skipuleggja mig og útbúa mikið af mat á svona stuttum tíma. Ég bjó til excel skjal til að reyna að skipuleggja mig betur og hefur það skjal þróast mikið í gegnum árin. Það var mikill sigur þegar okkur tókst loksins að hafa allt tilbúið áður en fyrsti gesturinn mætti í afmælið.

Það er EKKI RÉTT að segja að það sé ekki fyrir alla að baka og elda

Eins og kokkurinn Gusteau í teiknimyndinni Ratatouille sagði „Allir geta eldað“. Þetta er allt spurning um æfingu og gott skipulag. Fyrsta veislan sem maður heldur er alltaf að fara að vera krefjandi en með hverri veislu verður maður bara reynslunni ríkari. Ég hef til dæmis lært að gefa hverri uppskrift alltaf auka hálftíma til klukkutíma þegar ég geri tímaáætlun. Þetta kemur allt með tímanum og hér vil ég deila skipulagsskjalinu mínu til að hjálpa öðrum að byrja

Smelltu hér fyrir skipulagið

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*