Home » Dúnmjúk súrdeigssúkkulaðikaka

Dúnmjúk súrdeigssúkkulaðikaka

Saðsöm og góð súkkulaðikaka

  • Servings: 10 - 12
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Hér kemur saðsöm útgáfa af dúnmjúkri súkkulaðiköku sem inniheldur súrdeigsgrunn.  Nokkrum tímum áður en kakan er bökuð er vatni, súrdeigsgrunni, hveiti og kakói blandað saman og látið standa við stofuhita. Ef tíminn er naumur má svindla á tímanum – sérstaklega ef súrinn er vel virkur.  Mjög góð kaka sem helst líka góð daginn eftir og jafnvel þar næsta dag.  Oftast sker ég kökuna í tvennt langsum (sjá myndir) og set krem á milli en þá má nota hugmyndaflugið og leika sér með mismunandi útgáfur.

Forvinna

Upplagt að búa kakósúrdeigsgrunninn til fyrr um daginn í krukku og láta hann síðan standa.

Hráefni

 

  • 2 dl kakósúrdeigsgrunnur (½ dl súrdeigsgrunnur, 1 dl hveiti ,½ dl kakó og 1½ dl vatn)
  • 3½ dl hveiti
  • 3 dl sykur
  • 1 dl kakó
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1½ dl olía
  • 2 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 3 dl súrmjólk

Krem

  • 150 g smjör – við stofuhita
  • 2½ dl flórsykur
  • 1 dl kakó
  • 1 dl rjómi
  • Brætt suðusúkkulaði – má sleppa

Verklýsing

  1. Súrdeigsgrunni, vatni, hveiti og kakói blandað saman og látið standa í nokkra klukkutíma
  2. Ofninn stilltur á 180°C (blásturstilling)
  3. Bökunarpappírinn smurður með olíu/smjöri – settur í ofnskúffu/form (u.þ.b. 25 x 40 cm)
  4. Olía, egg, vanilludropar, kakósúrdeigsgrunnur og súrmjólk sett í skál
  5. Þurrefni sett í aðra skál (blandað saman) og bætt við deigið í nokkrum skömmtum – hrært saman með sleikju (einnig hægt að nota hrærivélina)
  6. Blöndunni hellt á bökunarpappírinn og bakað í 17 – 20 mínútur. Gott að fylgjast með og stinga prjóni í miðja kökuna til að sjá hvort hún sé bökuð – ef ekkert loðir við prjóninn er kakan tilbúin
  7. Kakan látin kólna á meðan kremið er útbúið. Ef ég nota brætt súkkulaði í kremið læt ég súkkulaðið bráðna í hitanum í ofninum
  8. Krem: Smjör og flórsykur þeytt saman. Kakói bætt varlega saman við ásamt rjóma – lítið í einu.  Ef brætt súkkulaði er sett í kremið er kremið þeytt aðeins áður en því er bætt við – lítið í einu.  Gæta þess að stoppa öðru hvoru og nota sleikju til að ná öllu í hliðum skálarinnar svo það nái að þeytast saman við.  Kremið þarf að þeyta vel saman
  9. Kakan skorin í tvennt og annar hlutinn settur á fallegan ílangan disk.  Það má snyrta hinn endann svo samræmi sé á hliðunum. Helmingi af kreminu dreift yfir kökuna. Hinn helmingurinn af kökunni lagður ofan á (má snyrta svo endarnir verði jafnir) og afganginum af kreminu smurt yfir
  10. Kakan er borin fram með rjóma

 

Hráefni

 

Kakósúrdeigsgrunnurinn látinn standa aðeins…

 

Krem í vinnslu…..

 

Önnur útgáfa … hjartaútgáfa

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*