Home » Gefðu mér eina af þessari….

Gefðu mér eina af þessari….

Einfaldar og góðar smákökur

  • Servings: 10 kökur
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Hér kemur ný útfærsla af smákökum sem hafa slegið í gegn á heimilinu.  Við erum að tala um kökur með brenndu smjöri, hvítu súkkulaði og ögn af sítrónukeimi.  Best er að móta kúlurnar og geyma þær í kæli í nokkrar klukkustundir. Það má líka geyma þær óbakaðar í kælinum í nokkra daga. Þá er lítið mál að skella þeim í ofninn og bjóða upp á ilmandi smákökur á augabragði.

Hráefni

  • 90 g smjör
  • 100 g ljós púðursykur
  • Sítrónusafi úr ½ sítrónu
  • 50 g sykur
  • 1 egg
  • ½ msk vanilludropar
  • 100 g hveiti
  • ½ tsk matarsódi
  • ½ – 1 tsk salt
  • 100 g saxað hvítt súkkulaði eða dropar

 

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 175°C – blásturstilling
  2. Smjörið brætt í potti (eins og þeytt smjör – sjá myndband) og tekið af hellunni – látið kólna aðeins. Nánari lýsing: Smjör er brætt á frekar háum hita.  Þegar það er bráðnað kraumar í því og það myndast hálfgerðir kristallar á yfirborðinu og síðan froða.  Á þeim tímapunkti fer að myndast litur í botninum – þá er potturinn tekinn af hellunni. Smjörið má alls ekki brenna en það er betra að það komi smá litur á botninn í pottinum – ef þessi ljósbrúna skán, sem myndast, er látin fylgja með kemur örlítill sætur og góður karamellukeimur af smjörinu
  3. Brennda smjörið, sykurinn og púðursykurinn sett í skál – hrært saman ásamt sítrónusafa og vanilludropum
  4. Eggi bætt við og hrært saman
  5. Matarsóda og salti blandað saman við ásamt hveitinu
  6. Að lokum eru súkkulaðibitarnir settir út í
  7. Gott að nota ísskeið til að móta kúlurnar og láta þær  í kælinn í smástund – ef ég hef knappan tíma skelli ég þeim stutta stund í frystinn
  8. Hafa gott bil á milli kúlna þegar þær eru settar í ofnskúffu (með bökunarpappír undir) – kökurnar eiga til að stækka mikið. Bakaðar í 10 mínútur

Gott að setja kúlurnar í kæli áður en þær eru bakaðar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*