Smátertur - einfaldar og fljótlegar
Uppruni
Þessi uppskrift kom fyrst inn á vefinn 2016 og þá sem smákökur með marsipanhjúp sem gerði þær bæði flóknari í vinnslu og sætari. Ég ákvað því að einfalda uppskriftina í þessar smátertur. Það er fljótlegt að baka botninn og samsetningin er einföld en betra að eiga hringlaga form/hólk til að aðstoða við að móta kökurnar (sjá mynd).
Forvinnsla
Botninn má baka fyrr um daginn eða daginn áður en betra að búa terturnar til samdægurs.
Hráefni
Botn
- 4 egg
- 100 g sykur
- 100 g hveiti
Samsetning
- 4 dl rjómi
- 1 msk vanillusykur
- Valfrjálst: Ber, ávextir, rifinn marsipan og/eða sulta
Verklýsing
Botn
- Ofninn hitaður í 200°C (blástur)
- Egg og sykur hvítþeytt
- Hveiti sett varlega út í (sigta hveitið) – ekki of mikið í einu og hræra varlega saman á milli með sleikju
- Bökunarpappír settur í skúffu/bakka – gott að smyrja pappírinn aðeins með hörðu smjöri. Yfirborðið sem deigið þekur er u.þ.b. 25 x 40 cm
- Deiginu dreift yfir pappírinn og bakað í 8 – 11 mínútur – fylgjast með svo að kakan verði ekki of dökk
- Kökunni hvolft á annan bökunarpappír – hinn tekinn af og ofnskúffan látin yfir ef ekki á að móta kökurnar strax – það kemur í veg fyrir að kakan harðni
- Rjómi þeyttur með vanillusykrinum. Ávextir skornir í fallega bita – einnig má setja heil ber eins og hindber eða bláber
- Hæfilega stórar hringlaga kökur skornar úr botninum (sjá myndir) – betra að snúa botninum upp þegar hringformið er lagt á – þá verður skurðurinn fallegri. Smekksatriði hversu stórar kökurnar eiga að vera en ég nota 5 – 7 cm hringform
- Nú er hólkurinn notaður til að móta terturnar – botninn settur neðst. Jarðarberjasneiðum raðað t.d. á hliðarnar, sulta, ber og/eða rifinn marsipan sett ofan á botninn. Næst er settur rjómi og að lokum er önnur sneið af hringlaga botni lagður ofan á – þrýst létt á. Gott að hafa mótspyrnu sem heldur kökunni stöðugir þegar hólkurinn er dreginn upp
- Skreytt með beri, flórsykri, myntu eða einhverju sem hentar árstímanum
Botn í vinnslu











