Home » Heill kjúklingur sem börnin elska

Heill kjúklingur sem börnin elska

Einfalt og gott fyrir stóra sem smáa

  • Servings: 4 - 5
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Áttu 90 mínútur til að elda matinn í ofninum og langar að hafa eitthvað einfalt og gott?  Þá er þessi barnvæni réttur tilvalinn.  Kosturinn er að hver og einn getur útfært réttinn eins og hann vill.  Á mínu heimili vilja flestir hrísgrjón sem meðlæti og sósan þykir algjörlega ómissandi.  Mér finnst hins vegar best að borða kjúllann með fullt af fersku salati og toppurinn er, ef ég á hoppandi góða hvítlaukssósu, að hafa hana með.   Kjúllann elda ég í Hönnupotti en hægt er að nota sambærilegan pott sem þolir að fara inn í heitan ofn.

Hráefni

  • Heill kjúklingur
  • Kjúklingakrydd

 

Sósa

  • 2½ dl kjúklingasoð (2½ dl heitt vatn og 1 msk kjúklingakraftur)
  • 1 – 1½ msk sósujafnari
  • ½ – 1 dl matreiðlsurjómi
  • ½ – 1 msk kjúklingakrydd
  • Soðið af kjúklingnum

 

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 180°C (blásturstilling). Kjúklingurinn kryddaður vel og settur í pottinn. Lokið sett á og látið eldast í klukkustund
  2. Eftir klukkutímann er gott að taka út pottinn og setja kjöthitamæli í bringuna (lokið sett aftur á). Þegar hitamælirinn sýnir 75°C ætti kjúllinn að vera orðinn eldaður
  3. Sósa: Kjúklingakraftur og vatn sett í pott – hitað. Sósujafnara bætt við og suðan látin koma upp.  Rjóma bætt við ásamt kjúklingakryddinu.  Þegar kjúllinn er tilbúinn er soðinu, sem kemur af honum, hellt saman við – hrært.  Ef sósan verður þunn eftir þetta má bæta við aðeins sósujafnara til að þykkja hana
  4. Kjúklingurinn settur á bretti og skorinn niður

 

Meðlæti: Hrísgrjón og salat

  

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*