Avókadó fyrir litlu krílin
Hugmyndin
Þegar ég gaf stelpunni minni avókadó, þá 6 mánaða gamalli, átti hún í miklum vandræðum með að taka það upp með höndunum þar sem það var svo sleipt og endaði oftast úti á gólfi. Þá kom hugmyndin að velta avókadó sneiðinni upp úr fræjum eða hnetudufti til að auðvelda henni gripið. Algjör snilld.
Geymsla
Allir þekkja rússnensku rúllettuna við að skera í avókadó og vona það besta. Ein góð leið er að kaupa þessi óþroskuðu, sem eru seld 6 stk í grænu neti, og geyma þau í kæli. 2-3 dögum eða stundum degi áður (fer allt eftir hversu hörð þau eru) er gott að taka þau sem á að nota úr kælinum og láta þau standa í stofuhita. Það hægir hins vegar á þroskaferlinu að geyma avókadó í kæli. Þannig er hægt að stjórna þessu aðeins betur auk þess að minnka matarsóun.
Hráefni
- Hálft þroskað avókadó
- hamp fræ/ sesam fræ/ pistasíu hnetur/ valhnetur eða aðrar tegundir af hnetum
Verklýsing
- Avókadó skorið í ræmur og kreisti próf gert
- Ef notaðar eru hnetur þá eru u.þ.b. 3-5 hnetur settar í matvinnsluvél og mulið þangað til þær eru orðnar duftkenndar
- Fræin/hnetuduftið sett á disk og avókadó ræmunum velt upp úr því þannig að það festist við ræmurnar
- Borið fram fyrir litla krílið og auðvitað þarf alltaf að fylgjast með barninu á meðan það borðar 🙂


. 



