Litlar semlur með vanillukremi
Uppruni
Hér kemur enn ein útgáfa af sænsku semlunum en það er alltaf gaman að prófa nýjar samsetningar. Þessar eru litlar og ljúfar með vanillukremi og rjóma. Vanillukremið má búa til daginn áður.
Hráefni
- 3 dl mjólk
- 100 g smjör
- 1 bréf þurrger (12 g)
- 1 egg – við stofuhita
- 1 dl sykur
- ½ tsk salt
- 9-10 dl hveiti
- ½ tsk hjartarsalt
- 1 tsk steytt kardimomma
- 1 egg – til að pensla bollurnar
- Sykur – ofan á bollurnar
- Vanillukrem
- Þeyttur rjómi
Verklýsing
- Smjör brætt í potti
- Mjólk hellt út í ásamt egginu – blandan látin vera ylvolg þ.e. 37°C – alls ekki hærri hiti
- Ger, sykur, kardimomma, salt og hjartarsalt sett í skál. Mjólkursmjörblöndunni bætt við
- 4 dl af hveitinu hrært saman við – hrært
- Afganginum af hveitinu bætt við og hnoðað
- Deigið látið hefast í 10 mínútur – með klút yfir
- Deigið sett á hveitistráð borð og skipt í 4 parta. Hverjum parti skipt í tvo parta og svo koll af kolli þar til þeir verða 32
- Bollur mótaðar með hendinni (sjá myndir) – settar á bökunarpappír á ofnplötu. Gott að setja rakan klút (viskustykki) yfir. Látið hefast í 1 klukkustund
- Ofninn hitaður í 225°C (yfir- og undirhiti)
- Bollurnar penslaðar með hrærðu eggi og sykri stráð yfir. Bakað í 5 – 7 mínútur
- Bollurnar látnar kólna áður en þríhyrningur er skorinn ofan af þeim og vanillukremið sett þar í staðinn (sjá mynd). Þeytti rjóminn kemur næst og síðan þríhyrningslokið efst (sjá myndir)
Geymsla
Bollurnar eru bestar nýbakaðar en líka fínar daginn eftir.
Litlar semlur í vinnslu…
Gott að nota lófann til að móta bollurnar (snúa lófanum í hringi)













