Vanillukrem - einfalt og fljótlegt
Uppruni
Svíar nota mikið vanillukrem með sætabrauði og eftirréttum. Mér finnst það svo gott en hef miklað fyrir mér að búa það til. Rakst á þessa sænsku uppskrift og ákvað að prófa. Hún er bæði einföld og góð – breytti aðeins hlutföllunum og set mína útgáfu hér inn til að halda henni til haga. Vanillukrem má t.d setja. á svampbotna, í rúllutertur eða bolludagsbollur.
Forvinna
Upplagt að búa kremið til daginn áður.
Hráefni
- ½ vanillustöng
- 1 egg
- 1½ dl mjólk
- 1 dl rjómi
- 3½ msk sykur
- 2 msk maizenamjöl – ath hægt er að hafa minna magn – þá verður kremið þynnra
Verklýsing
- Allt hráefnið sett í pott og pískað saman
- Látið hitna rólega á meðan hrært er stöðugt í pottinum – þegar blandan þykknar er kremið tilbúið. Gera má ráð fyrir að blandan þykkni þegar hún hefur náð 80°C (rétt áður en suðan kemur upp)
- Kremið látið kólna
Vanillukremið er t.d. gott með vatnsdeigsbollum og vöfflum.
Geymsla: Geymist vel í lokuðu íláti í kæli.







