Home » Góð þrenna í einni köku

Góð þrenna í einni köku

Kransakaka með vanillukremi

  • Servings: 4
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Hvernig finnst þér sambland af marsipani, vanillu og jarðarberjum hjóma?  Ef þér líst vel á ættir þú að doka aðeins við því hér kemur uppskrift að góðgætinu. Það má klárlega leika sér með lögunina en einnig er lítið mál að stækka eða helminga uppskriftina. Á degi elskenda er t.d. tilvalið að móta nokkrar litlar hjartakökur eða eina stærri. Einnig er fallegt að bera fram litlar hringlaga kökur í staðinn fyrir eina …  bara það sem hentar best hverju sinni.

Forvinna

Botninn má búa til daginn áður og sama á við um kremið.  Þá er bara eftir að dreifa kreminu yfir og punta kökuna með berjum.

Hráefni

  • 250 g kransakökumassi – rifinn
  • 2 eggjahvítur
  • 1 dl sykur
  • 2 dl vanillukrem
  • Íslensk jarðarber
  • Skraut: Brætt súkkulaði eða flórsykur – má sleppa

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 180°C (blásturstilling)
  2. Kransakökumassi, eggjahvíta og sykur sett í skál og hrært aðeins saman – ekki of lengi heldur bara þannig að hráefnin blandist saman
  3. Gera má ráð fyrir að þvermál kökunnar sé 18 cm. Rúmlega helmingur af deiginu settur á bökunarpappír – gott að nota hringlaga 20 cm kökumót eða hjartamót til að aðstoða við mótunina en einnig er hægt að teikna á pappírinn, snúa honum við og nota útlinurnar til að móta kökuna
  4. Til að dreifa úr deiginu er gott að nota fingurna eða blauta skeið og dýfa henni öðru hvoru ofan í vatn ef deigið loðir mikið við.  Því næst er kantur mótaður með því að þrýsta með hendinni á hliðar kökunnar – sjá myndir
  5. Afgangurinn af deiginu er settur í sprautupoka og fallegir litlir toppar sprautaðir ofan á kantinn
  6. Bakað í 12 – 20 mínútur – mismunandi eftir stærð.  Kakan látin kólna – gott að setja hana í plastpoka (eða klút) ef hún er bökuð daginn áður
  7. Vanillukrem smurt yfir miðjuna og jarðarberjum raðað fallega ofan á.  Má skreyta með bræddu súkkulaði eða flórsykri en ekki nauðsynlegt

 

Geymsla: Kakan er geymd í kæli – góð daginn eftir og jafnvel tveimur dögum síðar

Vanillukrem í vinnslu – sjá uppskrift hér

Lítil hjötu í vinnslu….

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*