Banana pönnukökur
Hugmyndin
Þegar kemur að því að matreiða fyrir yngstu börnin er gott að finna eitthvað sem er fljótlegt, einfalt og fjölbreytt. Þessar banana pönnukökur eru einmitt þannig og duga í 2-3 máltíðir. Ávaxtasykurinn frá banananum gefur þetta sæta bragð sem börnum finnst svo gott og áferðin á pönnukökunum er mjúk og þunn sem gefur gott grip og auðvelt að borða. Tilvalið í hádegis- eða morgunmat fyrir minnstu krílin.
Geymsla
Það koma um 4-5 litlar pönnukökur úr einni uppskrift. Hægt er að setja það sem eftir verður af deiginu í lokað ílát inn í ísskáp og geymist það ágætlega í 1-2 daga. Einnig er hægt að geyma bakaðar pönnukökur í lokuðu íláti inni í ísskáp í 1-2 daga. Sniðugt að gefa barninu þær aftur seinna um daginn sem hressingu eða bara í hádegismat daginn eftir.
Hráefni
- ½ banani
- 1 egg
- 1 matskeið haframjöl
- Kanill á hnífsbroddi (má sleppa)
- Bláber eða hindber (má sleppa)
Verklýsing
- Olía sett á pönnu og hituð
- Allt hráefni sett í matvinnsluvél og maukað saman
- Þegar pannan er orðin nógu heit er deiginu hellt á pönnuna – ekki hafa kökurnar of stórar (sjá mynd)
- Hægt er að kremja stór fersk bláber, dreifa frosnum litlum bláberjum eða mylja frosin hindber yfir pönnukökurnar áður en þeim er snúið við á pönnunni
- Þegar pönnukökunum er snúið við er þægilegt að nota tvær sleikjur þar sem þær eiga auðvelt með að brotna við snúninginn
- Pönnukökurnar eru skornar í ræmur fyrir yngstu börnin fyrir betra grip og auðvitað þarf að fylgjast með barninu á meðan það borðar












