Ofnbakaðir kartöflubátar
Uppruni
Það þarf ekki að vera flókið að fá sér brakandi kartöflur með steikinni eða hamborgaranum. Margir kaupa sér tilbúnar frosnar sem er ekkert endilega að flýta matseldinni þegar allt kemur til alls. Krönsí kartöflubáta ættu allir að geta búið til – byrjendur sem vanir. Aðaltrixið er að setja ekki of mikið af kartöflum í hverja ofnskúffu – þá verða þær ekki eins stökkar.
Forvinna
Ef tíminn er naumur er hægt að skera niður kartöflurnar fyrr um daginn og láta þær standa í köldu vatni – þannig halda þær ferskleika sínum. Önnur leið er að forelda kartöflurnar fyrr um daginn þ.e. ljúka við liði 1 – 8
Hráefni
- 1,2 kg kartöflur – passlegt í meðalstóra ofnskúffu
- Hitaþolin olía
- Salt
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 250°C (undir- og yfirhiti)
- Kartöflur skornar í 4 báta. Yfirleitt læt ég hýðið vera á en það er smekksatriði
- Bátarnir settir í ofnskúffu – ekki hafa bökunarpappír
- Slumpi af olíu dreift yfir – smekksatriði en ágætt að miða við ½ dl
- Ofnskúffan sett í heitan ofninn fyrir miðju í 15 mínútur
- Tekið út og látið jafna sig aðeins áður en spaði er notaður til að losa kartöflurnar frá botninum. Ath. með því að láta kartöflurnar kólna aðeins í 3 – 4 mínútur losna þær auðveldlega frá botninum (án þess að hluti af ysta laginu sitji fast eftir)
- Kartöflunar settar aftur inn í 15 mínútur – teknar út og látnar aftur bíða áður en hrært er í þeim
- Sett aftur inn í 15 mínútur sem er jafnframt lokasteikingin. Gott að salta kartöflurnar þegar þær eru teknar út. Smekksatriði hvort kartöflurnar eru kryddaðar meira
Viltu búa til fyrir fleiri en 5?
Þá er leiðin t.d. að vera með tvær ofnskúffur og setja þær inn til skiptist – gott að láta aðra bíða á meðan hin er inni. Hræra svo í rétt áður en hún fer aftur inn í ofninn. Ef ég er í tímaþröng þá svindla ég stundum og set báðar ofnskúffurnar inn í einu. Passa bara að skiptast á hvor er fyrir ofan og hvor er fyrir neðan.
Viltu nýta tímann á meðan kartöflurnar steikjast? T.d. undirbúa annað sem á að bera fram. Sniðugt að þvo og ganga frá jafnóðum í eldhúsinu…. þá er minni vinna eftir matinn.







