Home » Grísk jógúrt með berjum

Grísk jógúrt með berjum

Grísk jógúrt með berjum

  • Servings: 1
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Hugmyndin

Þegar maður hefur ekki orku eða tíma til að elda fyrir barnið þá er alltaf gott að grípa í grísku jógúrtina. Börnunum finnst hún ekkert frábær ein og sér en með því að bæta við smá sætu af berjunum og banananum og fitu frá hnetusmjörinu gerir það réttinn ennþá betri og meira spennandi fyrir litlu krílin. Ég mæli með að leyfa barninu að spreyta sig sjálft á því að borða jógúrtblönduna með skeið.

Geymsla 

Hægt að geyma afganginn í kæli í nokkra daga. Alltaf gott að geta gripið í þetta á ferðinni eða bara í næsta hádegi.

Hráefni

  • 2 kúptar matskeiðar af grískri jógúrt (betra að hafa fituprósentuna í hærri kanntinum)
  • 1 matskeið frosin aðalbláber/frosin hindber
  • ¼ – ½ banani
  • 1 teskeið hnetusmjör (má sleppa)

Skraut

  • Kókosmjöl (má sleppa)
  • Pistasíuhnetur (má sleppa)

Verklýsing

  1. Banani stappaður með gaffli þangað til hann er orðinn að mauki
  2. Grísk jógúrt sett í skál ásamt frosnum berjum, hnetusmjöri og bananamauki
  3. Látið standa í nokkrar mínútur þangað til berin hafa þiðnað smá
  4. Hrært og stappað saman með gaffli
  5. Ef skreyta á með pistasíum eru 3-4 hnetur settar í matvinnsluvél þangað til þær eru orðnar að dufti
  6. Blandan er sett í skál eða á disk og kókosmjöli/pistasíudufti dreift yfir
  7. Sett fyrir framan barnið og mæli ég með að leyfa barninu að prófa sig áfram með skeið

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*