Fljótlegt og hollt bláberjapæ
Uppruni
Ef þú átt frosin bláber í frystinum er upplagt að bjóða upp á þessa bombu í eftirétt. Hér er á ferð fljótleg heimasmíð sem hefur verið skellt í aftur og aftur. Réttur sem er tiltölulega sykurlítill og góður og má ýmist bera hann fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Forvinna
Hægt er að búa í haginn með því að gera kardimommukurlið fyrr um daginn.
Hráefni
Bláberjablanda
- 4 dl bláber
- 2 msk hrásykur
- ½ tsk vanilluduft
- 1½ – 2 dl kransakökumassi – rifinn gróft
Kardimommukurl
- ½ tsk kardimommukjarnar (ef ekki eru til kjarnar má nota malaða kardimommu)
- 40 g smjör
- 1½ dl hafragrjón
- ½ dl kókosmjöl
- 2 msk hunang
- ½ tsk salt
Verklýsing
- Ofninn stilltur á 175°C (yfir- og undirhiti)
- Kardimommukurl: Kardimommukjarnar muldir í morteli. Smjörið brætt á pönnu á meðalhita og steytta kardimomman (eða mulin) sett út í og öllu blandað saman ásamt haframjöli, kókosmjöli, hunangi og salti. Látið malla stutta stund þar til blandan fer að gulna. Ath. ekki of lengi þá getur kurlið harðnað of mikið þegar það kólnar (ef það gerist þá er hægt að setja smá vatn í kurlið og lofa því að hitna aftur á pönnunni)
- Bláber sett í fallegt eldfast mót eða Hönnupott. Hægt er að minnka uppskriftina um helming eða tvöfalda hana… fer eftir fjöldanum
- Hrásykri og vanilludufti stráð yfir. Rifnum kransakökumassa dreift yfir í lokin. Bakað i ofni í 11 – 15 mínútur – passa að taka út þegar yfirborðið hefur tekið góðan lit
- Kardimommukurli stáð yfir. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís











