Stökkar vöfflur
Uppruni
Þessi uppskrift kemur frá mömmu.
Forvinna
Það má laga deigið daginn áður og geyma í kæli – jafnvel í nokkra daga.
Hráefni
- 300 g hveiti
- 3 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 250 ml mjólk
- 250 ml súrmjólk
- 3 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 50 g smjör
Verklýsing
- Eggjahvítur þeyttar í hrærivél eða með þeytara (þarf ekki að þeyta sérstaklega en deigið verður léttara ef það er gert)
- Hveiti, lyftidufti, salti og hluta af súr- og mjólkinni blandað saman. Þeytt með pískara þar til deigið er kekkjalaust. Eggjarauðum bætt við, því sem eftir er af mjólkinni og vanilludropum
- Ef eggjahvíturnar eru þeyttar sér þá er þeim bætt varlega saman við deigið
- Smjör brætt og bætt við
- Gott að setja vöfflurnar beint á grind eftir bakstur til að þær verði stökkar. Vel bakaðar vöfflur verða stökkar en þær minna bökuðu verða mýkri
Geymsla
Afgangur af deiginu má fara í ísskápinn með plasti eða loki yfir.






