Home » Kreisti prófið

Kreisti prófið

Kreisti próf

Kreisti próf eða „Squish test“ er notað til að athuga hvort lítil börn frá aldrinum 6-10 mánaða geti borðað tiltekinn mat með ákveðinni áferð. Það er, með þeirri áferð að hægt sé að kreista matinn með tveimur fingrum (vísifingri og þumalfingri). Því auðveldara sem það er fyrir fullorðinn að kreista matinn þeim mun betur gengur barninu að borða hann.

Tökum nokkur dæmi

  • Avókadó -> Já, því þroskaðra því betra
  • Gulrót -> Nei
  • Gufusoðin gulrót -> Já
  • Banani -> Já
  • Þroskað mangó -> Já, því þroskaðra því betra
  • Epli -> Nei
  • Gufusoðið epli -> Já
  • Brokkolí -> Nei
  • Gufusoðið brokkolí -> Já
  • Tómatar -> Já, því þroskaðri því betri og gott að taka hýðið í burtu
  • Sæt kartafla -> Nei
  • Bökuð sæt kartafla -> Já
  • Appelsína -> Já
  • Pera -> Nei
  • Mjög þroskuð pera -> Já
  • Hrært egg -> Já
  • Harðsoðin egg -> Já
  • Pönnukökur -> Já

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*