Home » Hugmynd að helgarnammi

Hugmynd að helgarnammi

Súkkulaðibiti með dassi af óhollustu eða hollustu

  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

 

Uppruni

Hér er ekki um nein geimvísindi að ræða heldur bara einfalda leið til að búa til sína eigin útgáfu af sælgæti.  Hægt er t.d. að nota súkkulaðið sem til er eftir jólabaksturinn og fræ til að gera ,,hollari“  útgáfu af helgarnamminu og um leið að friða samviskuna.  Bitarnir eru góðir með kaffisopanum en þá má líka nota  sem skraut á köku eða á eftirréttinn.  Súper dúper einfalt og fallegt  sem ég set hérna inn til að muna eftir möguleikanum.

 

Hráefni

  • Súkkulaði eins og t.d. suðusúkkulaði eða mjólkursúkkulaði (má einnig vera blanda af mismunandi súkkulaði)
  • Hugmyndir: lakkrís skorinn niður eða aðrir sælgætisbitar
  • Hollari hugmyndir:
    • fræ eins og sólblómafræ, graskersfræ, chiafræ, sesamfræ, birkifræ og/eða hörfræ
    • kókosflögur
    • hnetumulningur
    • Turmerik
  • Bragðsterkari útgáfa: chilliflögur eða engiferduft
  • Saltflögur

Verklýsing

  1. Súkkulaðið brætt yfir heitu vatnsbaði – varast að hita of mikið.  Sjá tempra súkkulaði. Þegar skálin er tekin af pottinum er gott að þurrka undir hana (svo dropi ekki á pappírinn)
  2. Súkkulaðinu dreift yfir smjörpappír með sleikju
  3. Mulningi af óhollusut eða hollustu dreift yfir – látið harðna og brotið niður í bita

Með lakkrísafgöngum…

Með hnetum og fræjum…

Úllen dúllen doff… lakkrís eða fræ

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*