Frábær fennel ís
Uppruni
Um daginn fékk ég alveg frábæran forrétt sem ég gat ekki hægt að hugsa um. Í honum var fennel ís og lá því beinast við að finna út hvernig ég myndi búa hann til. Með googli á veraldarvefnum fann ég uppskrift sem ég aðlagaði að því sem er auðvelt að nálgast hér á landi. Ísinn geri ég í ísvél og var gaman að búa hann til. Þar sem ísinn heppnaðist mjög vel set ég inn mína útgáfu af þessum góða ís sem á bæði vel við með forréttinum góða eða sem afbragðs eftirréttur.
Hráefni
- 2 ferskt fennel – hreinsað og skorið níður
- 2 msk fennelfræ
- 475 ml rjómi
- 475 ml mjólk
- ½ dl sýróp eða hunang
- 6 eggjarauður
- 3 dl flórsykur
- 2 tsk Galliano líkjör – má sleppa
Verklýsing
- Fennel skolað – saxað gróft
- Fennelfræin sett á litla heita pönnu og ristuð létt
- Fennel, fræ, rjómi, mjólk og sýróp sett í pott og hitað að suðu. Slökkt undir og látið standa í klukkustund (með loki á)
- Eggjarauður og sykur þeytt saman þar til blandan verður létt og ljós
- Mjólkurblandan hituð að 90 gráðum (ekki sjóða) – vökvinn sigtaður frá í skál sem gott er að hella úr
- Hellt mjög rólega í eggjarauðurnar – þeytt á meðan
- Ef potturinn er notaður aftur er hann skolaður – eggjamjólkurblöndunni hellt í hann
- Hitað varlega – hrært með sílikonspaða þar til blandan þykknar (loðir við spaðann) – alls ekki sjóða. Blandan byrjar að þykkna við 80 – 90 gráður
- Gott að láta standa yfir nótt í kæli
- Galliano bætt við fyrir þá sem vilja meira anísbragð – Blöndunni hellt í ísvél
- Geymt í frysti í lokuðu íláti
Látið jafna sig í klukkustund með lokið á (það þarf ekki að taka skánina af sem getur myndast)
Hitað að 90°C – sigtað í skál sem auðvelt er að hella úr
Vökvanum hellt í þeyttu eggjarauðurnar
Hellt aftur í pottinn og hitað þar til blandan þykknar – ekki hærra en 90°C

Daginn eftir (lágmark 6 klukkustundum seinna) – ísinn búinn til











Pingback: Óhefðbundinn forréttur borinn á borð