Bleikjuhringur með ís
Uppruni
Þennan forrétt fékk ég þegar ég var stödd erlendis. Þegar heim var komið var ég ennþá að hugsa um hann og langaði að prófa að gera mína útgáfu. Magnið er persónubundið en mér finnst betra að hafa réttinn lítinn í sniðum. Ég hef bara prófað hann með heimagerða fennel ísnum sem ég bý til sjálf en eflaust má alveg nota góðan vanilluís. Ef þig langar í öðruvísi útgáfu af forrétti og finnst í lagi að borða hráan fisk…. þá er þetta málið.
Hráefni
- 250 g bleikjuflak – landeldi (roðhreinsað og skorið mjög smátt)
- 2½ tsk rauðlaukur – skorinn mjög smátt
- 5 – 6 tsk smáskornir bitar af sætum ávexti eins og papaya eða cantalópu
- ½ – 1 tsk sítrónusafi
- 5 – 10 tsk af hrognum
- 2 msk góð olía (gefur fallegan lit að mixa basil og olíu saman)
- 5 kúlur fennel ís (eða vanilluís)
Verklýsing
- Gott að saxa bleikjuna, rauðlaukinn og ávöxtinn smátt og blanda saman í skál ásamt sítrónusafanum
- Fallegur og penn hringur myndaður með blöndunni á forréttardiska þannig að gott pláss verði fyrir ísinn í miðjunni (sjá mynd). U.þ.b. 40 g á hverjum diski
- Nokkrir dropar af olíu settir í miðjuna
- Hrogn sett á fallegan stað. Ath. þau gefa gott saltbragð og eru alveg nauðsynleg með
- Kúla af ís sett í miðjuna. Fallegt að setja nokkra dropa af basilolíunni ofan á ísinn. Rétturinn borinn fram
Hráefni
Ágætt að nota eitthvað til að hjálpa við að móta hringinn
Þegar málmhringirnir hafa verið teknir af má stækka miðjuna aðeins til að koma ísnum betur fyrir









