Sterk útgáfa af hægelduðu grísakjöti – pulled pork

Sterk útgáfa af hægelduðu grísakjöti - pulled pork

  • Servings: 14 – 16 sem full máltíð
  • Difficulty: ekki flókið en krefst skipulags
  • Print

Uppruni

Fyrir nokkru áskotnaðist mér kokkabók með ýmsum taco uppskriftum og hef ég verið að prófa mig áfram með þær. Þar með er útgáfa af hægelduðu grísakjöti.  Meðlætið getur verið tortillur, hamborgarabrauð eða bara eitthvað sem hverjum og einum dettur í hug. Best að kaupa ferskt chili og láta það hanga aðeins – það getur tekið nokkra daga.  Ég hef ekki alltaf náð að láta það þorna nægilega en það hefur ekki komið að sök.

Frábær réttur og þægilegur – bara eitt sem er nauðsynlegt…. vera skipulagður og byrja undirbúninginn tveimur sólarhringum áður en maturinn er framreiddur.

Forvinnsla

Kryddblönduna má laga löngu áður og sama má segja um chilimaukið og barbecuesósuna.  Þegar kjötið er sett í löginn má búa barbecuesósuna til eða jafnvel fyrr þar sem hún geymist vel í kæli.

Hráefni

Kjöt

  • Rúmlega 3 kg svínahnakki (eða svína innralæri)
  • Stór steikarpoki

 

Lögur/pækill

  • 2 dl síróp
  • 1½ dl salt
  • 2 lítrar heitt vatn

 

Kryddblanda

  • 2 msk reykt paprikuduft
  • 1 msk cumin
  • 2 tsk fennel fræ
  • 1 msk kóríander
  • 2 – 3 hvítlauksrif
  • 1 tsk cayennepipar
  • 2 tsk salt
  • 1 tsk mulinn svartur pipar
  • 1 msk chiliduft

 

Barbiquesósa

  • 2 stk chili (það er allt í lagi þó að það sé ekki alveg þurrt)
  • 1 gulur laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 gulrót
  • 1 sellerístilkur
  • ½ dl olía
  • ½ dl muscovado sykur (dökkur)
  • 2 tsk reykt paprikuduft
  • 1 dl tómatpúrra
  • 5 litlir tómatar – skornir í bita
  • 1½ msk worcestersósa
  • ½ dl balsamik edik
  • Vatn af chilimaukinu (sjá 7. í Barbecusesósa)
  • ½ – 1 msk reykt whisky (má sleppa)
  • Salt og pipar

 

Hugmyndir að meðlæti

Verklýsing

Lögur

  1. Allt sett í pott og hrært þar til sírópið og saltið er leyst upp (gott að hafa aðeins hita á hellunni). Látið kólna. Kjötið sett í steikarpoka og blöndunni hellt í pokann – reyna að ná öllu lofti úr og pokanum lokað. Látið standa í kæli 12 -14 klukkustundir

 

Kryddblanda

  1. Öllu blandað saman og maukað í matvinnsluvél

 

Barbecuesósa

  1. Chili sett á heita pönnu – látið vera þar í 3 – 4 mínútur og snúið við reglulega svo það brenni ekki
  2. Vatni hellt yfir (2 – 3 dl) og látið sjóða í 5 – 6 mínútur með loki yfir
  3. Chili tekið upp úr og látið kólna. Ekki henda vatninu – það má nota í pottrétti eða sósur.  Ég hef oft notað það til að þynna sósuna
  4. Stilkar teknir af og chili fræhreinsuð.  Chili saxað mjög smátt eða sett í matvinnsluvél – lagt til hliðar
  5. Laukur, hvítlaukur, gulrót og sellerí sett í matvinnsluvél og maukað aðeins
  6. Olía sett í pott og blöndunni hellt út í.  Steikt á meðalhita þar til laukurinn og selleríið verður glansandi – gott að hræra reglulega
  7. Muscaovado sykur, paprikuduft og tómatpúrra sett út í og hitinn hækkaður í nokkrar mínútur
  8. Tómötum bætt við ásamt worcestersósu, balsamediki, chilisoðinu og aðeins af whisky (má sleppa) – látið sjóða í 30 mínútur. Hræra í öðru hvoru – ef blandan er of þurr er gott að setja aðeins meira af chilisoðinu eða bara aðeins vatn
  9. Maukað með töfrasprota, kryddað með salti og pipar og látið malla á meðalhita í 15 – 20 mínútur þar til blandan er orðin þykk

 

Steiking

  1. Kjötið tekið úr kæli og leginum hellt af. Þerrað með eldhúspappír – einnig gott að þurrka aðeins innan úr pokanum
  2. Kryddblöndunni makað á allt kjötið og það síðan sett aftur í steikarpokann
  3. Ofninn stilltur á 80°C og kjötið steikt í 12 – 16 klukkustundir
  4. Kjötið tekið úr pokanum og tætt í sundur með tveimur göfflum
  5. Ofninn hitaður í 200°C – barbecuesósu dreift yfir og kjötið grillað þar til kominn er fallegur litur

 

Kryddblanda

Lögur/pækill

 

Barbiquesósa

 Steiking

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*