Home » Melanzane alla parmigiana… svo gott

Melanzane alla parmigiana… svo gott

Djúpsteikt eggaldin með tómötum og mozzarella

  • Servings: 3-4
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

 

Uppruni

Þessi réttur er í uppáhaldi hjá Dagnýju vinkonu minni og var það að ósk hennar sem við fengum kennslu í að búa hann til á matreiðslunámskeiðinu í Flórens hér um árið.  Það hefur verið lengi á dagskrá að setja inn uppskriftina … en þar sem heimilisfólkið átti erfitt með að sannfærast um ágæti réttarins varð hann alltaf undir.  En viti menn svo kemur í ljós að hann þykir bara nokkuð góður.  Það má mæla með þessum rétti … sérstaklega fyrir þá sem eru grænir og vænir… en líka hina.

Ath. Það er smekksatriðið hversu mikið af eggaldinsneiðum á að vera í hverju lagi – þeir sem vilja hafa mjög mikið af þeim ættu að nota 3 eggaldin í uppskriftina

Hráefni

  • 2 – 3 meðalstór eggaldin – skorin í þunnar sneiðar (langsum eða þversum)
  • 40 g hveiti – sett á disk
  • 400 g sólblómaolía
  • 500 g tómatar (niðursoðnir eða ferskir – gott að nota tómata sem liggja undir skemmdum)
  • 200 g mozzarella ostur – aðeins kreistur og skorinn í smá bita
  • Ólífuolía
  • Salt
  • 10 – 15 basillauf – söxuð.  Einnig má nota þurrkað basil
  • 2 – 4 hvítlauksrif – söxuð
  • Parmesanostur – rifinn fínt

Verklýsing

  1. Eggaldinsneiðunum velt létt upp úr hveitinu (ágætt að dusta hveitið aðeins af sneiðunum – þá verður það síður eftir í olíunni þegar þær eru steiktar)
  2. Olía sett í djúpa pönnu eða pott og hituð – gott að stinga hitamæli í olíuna til að sjá hvenær réttu hitastigi er náð þ.e. 180° – 200°C.  Eggaldinsneiðarnar steiktar á báðum hliðum. Ath. olían þarf alls ekki að vera svo mikil bara þannig að sneiðarnar nái að steikjast vel.  Þær eru tilbúnar þegar þær hafa náð gulbrúnum lit.  Lagðar á eldhúspappír og salti stráð yfir.  Ath. Í stað þess að djúpsteikja má setja sneiðarnar á grillið en þá er betra að pennsla sneiðarnar með olíu svo þær festist síður við
  3. Sósa: Saxaður hvítlaukur settur ofan í heita pönnu eða pott með olíu í – hrært. Tómötum og hluta af basil bætt við – látið malla í 15 mínútur
  4. Ofninn hitaður í 180°C
  5. Samsetning: Fyrst er lag af tómatamauki sett í eldfast fat (eða í Hönnupott, má setja bæði í efri og neðri hlutann).  Næst er eggaldinsneiðum dreift yfir og svo mozzarellabitum.  Að lokum er parmesanosti stráð yfir.  Svo aftur.. tómatamauk, eggaldin, mozzarella, parmesan…þegar 3 – 4 lög af eggaldini eru komin er endað með tómatamauki og parmesanosti.  Ath. það er svolítið smekksatriði hversu margar eggaldinsneiðar eru settar í hvert lag… þær geta alveg verið mjög þétt saman
  6. Bakað í ofni í 20 – 25 mínútur

Geymsla: Gott að eiga afgang daginn eftir

Hráefni

 

Sósa í vinnslu

Eggaldin skorin niður þversum og djúpsteikt

Í stað þess að djúpsteikja má setja sneiðarnar á grillið

Samsetning undirbúin

Eggaldin má einnig skera langsum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*