Góður biti af foie gras, nauta carpaccio og parmesan
Uppruni
Um daginn fékk ég svo góðan forrétt á veitingastað erlendis. Það var því næsta skref að reyna að búa til eitthvað sambærilegt. Hér kemur afraksturinn… einfaldur og fljótlegur smáréttur eða forréttur en hann er ekki fyrir alla þar sem um er að ræða blöndu af hráu kjöti og andakæfu. Það má eflaust nota úrvals lifrarkæfu ef erfitt er að nálagast foi gra. Mér finnst best að rista súrdeigsbrauð og skera í litla bita en einnig má nota samlokubrauð.
Hráefni
- Andakæfa (Foi gra) eða sambærilegt
- Carpaccio sneiðar – hægt að kaupa frosnar í kjötverslunum
- Parmesanostur – rifinn fínt
- Smá sæta eins og t.d. Sætir perubitar eða biti eða sneið af sultuðum engifer
- Sneið af súrdeigsbrauði – ristuð
- Pipar og salt
- Nokkrir dropar af góðri olíu
Verklýsing
- Súrdeigsbrauðsneið ristuð á pönnu eða í grilli. Ef brauðið er orðið hart er hægt að spreyja sneiðina með smá vatni og setja hana svo á pönnuna. Brauðsneiðin er skorin í hæfilega bita
- Andakæfa smurð á hvern brauðbita og nokkrir bitar af sætum perubitum settir ofan á. Smekksatriði hversu mikið magn er af kæfunni
- Carpacciosneið lögð ofan á… ef bitinn er minni en sneiðin má alveg skipta carpacciosneiðinni í tvennt eða þrennt… þetta er allt smekksatriði
- Gott að setja nokkra dropa af olíu yfir
- Parmesanostur rifinn yfir og piprað og saltað aðeins
Í vinnslu munnbiti með sætum perubitum…
Munnbiti með foie gras og sultuðum engifer








