Home » Sætir perubitar – gott meðlæti

Sætir perubitar – gott meðlæti

Smjörsteiktar perur með sætu

  • Servings: /Magn: 1 krukka
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

 

Uppruni

Það er gott að eiga steikta perubita í smá sætu til að bjóða upp á t.d. með kjötbollum, hreindýrabollunum, lifrarkæfunni, saltkjötsbollunum eða þar sem gott er að blanda smá sætu við.  Einfalt og gott sem geymist vel í kæli – muna samt að taka perukrukkuna úr kælinum töluvert áður þar sem bitarnir eru betri við stofuhita.

 

Hráefni

  • 1 stór pera eða 2 litlar – skornar niður í litla bita
  • Smjörklípa
  • 1 –  1½ tsk hunang
  • 1 msk hvítvín
  • 1 msk hvítvínsedik

Verklýsing

  1. Smjör sett á pönnu og látið ná góðum hita.  Perubitarnir settir á pönnuna og steiktir í smjörinu. Því næst er hunang sett yfir og steikt áfram þar til kemur smá litur á perubitana.  Bitarnir lagðir til hliðar
  2. Hvítvín og hvítvínsedik sett á pönnuna og hitinn látinn koma upp aftur.  Perubitunum bætt við og blandað saman
  3. Látið kólna og sett í skál/krukku

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*