Home » Rabarbaragæði með kardimommurjóma

Rabarbaragæði með kardimommurjóma

Muffins eða ein stór múffa á góðum sumardegi

  • Servings: 7 - 10
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Jebbs …. núna er rabarbarinn ferskur og kátur og því upplagt að koma með eina lauflétta og góða múffu í tilefni þess.  Uppskriftin á rætur sínar að rekja til Svíþjóðar en þeir eru mikil kardimommuþjóð.  Það er líka svo skemmtilegt hvað kardimommur og rabarbari tala vel saman.  Uppskriftina má gera í einu eldföstu móti (Hönnupotti) eða í muffinsformum.

Kardimommur

Í Svíþjóð er hægt að kaupa kardimommufræin í poka sem er upplagt að mylja gróft í morteli.  Hér er annaðhvort hægt að fá fínmalaða kardimommu eða kardimommubelgina sem þarf að taka úr skelinni áður en fræin eru mulin í morteli.   Ef notast er eingönu við fínmalaða kardimommu má minnka aðeins magnið í rjómanum og hafracrumblinu og smakka til.

Hráefni

  • 200 g rabarbari – skorinn í smáa bita
  • 1 lífræn sítróna – hýðið rifið fínt
  • 2 egg
  • 2½ dl og 1 msk sykur
  • 1 msk vanillusykur
  • 100 g smjör
  • 2 dl mjólk
  • 4 dl hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • ¼ tsk salt
  • 1 tsk fínmöluð kardimomma
  • ½ msk kartöflumjöl

 

Hafracrumble

  • 50 g smjör
  • ½ dl sykur
  • 1½ dl haframjöl (eða tröllahafrar)
  • 1 msk vanillusykur
  • 1 tsk grófmulin kardimomma

 

Kardimommurjómi

  • 2½ dl rjómi
  • 1 tsk grófmulin kardimomma

Verklýsing

  1. Ofninn stilltur á 180°C (blásturstilling) – ef notaður er Hönnupottur er gott að hita hann með ofninum
  2. Egg, vanillusykur og 2½ dl sykur þeytt saman þar til blandan verður létt og ljós
  3. Smjörið brætt, mjólk bætt við ásamt sítrónuhýði – blandað saman. Öllu hellt í blönduna ásamt hveiti, salti og lyftidufti – blandað varlega saman
  4. Rabarbara, 1 msk sykri, kardimommu, og kartöflumjöli blandað saman í skál.  Öllu bætt við deigið og hrært saman – allt sett í Hönnupott (eða sambærilegat form sem þolir að fara í ofn) eða 10 muffinsform.  Bakað í 20 mínútur ef í potti (muffins þurfa 5 mínútur) – tekið út og Crumble bætt við

 

Crumble

  1. Smjörið brætt.  Sykri, haframjöl og vanillusykri – blandað saman við brætt smjörið.  Blandan sett yfir deigið eftir að hafa bakast í 20 mínútur og bakað áfram í 15 – 20 mínútur (muffins þurfa 10 mínútur)

 

Muffins

Ef bakað er í muffinsformum er heildarbaksturinn 15 mínútur en fyrst þarf að baka kökurnar í 5 mínútur og svo er Crumble sett yfir og bakað áfram í 10 mínútur.  Gera má ráð fyrir 15 – 20 stk.

Kardimommurjómi

  1. Rjóminn þeyttur og kardimommu blandað saman við

Rabarbaragæði bakað í leirpotti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*