Einföld og góð brokkolísúpa með kókosmulningi
Uppruni
Uppskriftina fékk hjá Önnu Kristínu en þegar ég bjó súpuna til fyrst stóð þannig á að það var ekki allt til í hana þannig að hún tók svolitlum breytingum. Útgáfan var bara alveg glimrandi góð og set ég hana hingað inn til að gleyma ekki innihaldi og hlutföllum. Það er svo frábært með þessa súpu að hún verður bara betri daginn eftir… og jafnvel ennþá betri tveimur dögum síðar. Uppskriftina má hæglega helminga en þá er hún passleg fyrir 4. Mér finnst gaman gaman að bjóða upp á súpuna í litlum skálum sem forrétt og hef þá hrökkkex með.
Hráefni
- 2 laukar – saxaðir
- 4 hvítlauksrif – söxuð
- 1 grænn chili pipar – saxaður (smekksatriði hversu sterk súpan á að vera – því fleiri fræ þeim mun sterkari súpa)
- Olía til steikingar – örlítið af smjöri gefur einnig gott bragð
- 2 msk fersk engiferrót – rifin
- 1 tsk kóríander
- ½ tsk karrý
- ½ tsk túrmerik
- ¼ tsk cumin
- 12 dl grænmetiskraftur (12 dl vatn og u.þ.b. 3 msk grænmetiskraftur – magn aðeins mismunandi eftir tegundum. Má lesa á umbúðum)
- 2 brokkolíhöfuð (u.þ.b. 600 – 700 g) – tekið í sundur og stilkur skorinn í litla bita
- 400 g kókosmjólk (ein dós)
- 2½ dl matreiðslurjómi
- Ferskur kóríander – má sleppa
- Nokkrir dropar af sítrónusafa
- Salt og pipar
Skraut
- 1 laukur – saxaður smátt
- 1 – 2 msk smjör eða olía til steikingar
- 1 dl kókosflögur
- Ferskt kórander eða steinselja
Verklýsing
- Olía hituð í potti. Laukur og hvítlaukur látnir krauma á lágum hita þar til þeir verða glærir
- Chili pipar bætt út í ásamt engiferi og kryddum – hiti aðeins hækkaður og hrært saman
- Kjúklingakrafti bætt við í pottinn
- Brokkolí sett út í og suðan látin koma upp – soðið í 5 – 7 mínútur
- Kókosmjólkinni hellt út í og soðið í nokkar mínútur. Ef ferskt kóriander er notað er því bætt við ásamt matreiðslurjómanum
- Maukað saman í blandara eða með töfrasprota
- Bragðbætt með salti, pipar og sítrónusafa
Skraut
- Laukur látinn krauma á lágum hita þar til hann verður glær
- Kókosflögum blandað saman við og hitinn aðeins hækkaður – tekið af þegar kókosflögurnar hafa tekið smá lit en mega alls ekki brenna – sett í skál
- Ferskt kóriander eða steinselja – saxað
- Skrauti dreift yfir súpuna
Meðlæti
Gaman að bjóða upp á nýbakað brauð eða heimatilbúið hrökkkex með súpunni.