Þessir fiskborgarar eru algjört lostæti

Þessir fiskborgarar eru algjört lostæti

  • Servings: 4 - 5
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Ég sá þessa útfærslu á fiskborgurum í breskum sjónvarpsþætti – breytti aðeins og giskaði á magnið en útkoman varð mjög góð.  Meðlætið er einfalt, salat og laukur, en með því að djúpsteikja laukhringina mildast bragðið af þeim.  Eflaust er líka gott að hafa ferska laukhringi en laukbragðið verður líklega svolítið meira áberandi (gott að leggja þá í kalt vatn í svolitla stund).  Ef til er wookpanna eða lítill pottur á heimilinu er einfalt að djúpsteikja nokkra laukhringi en hitaeiningafjöldi hamborgarans hækkar óneitanlega töluvert við það.  Sósan er bragðgóð og á alveg sérstaklega vel við – þegar hún hefur staðið svolítið verður hún fallega grænleit. Léttir og góðir fiskborgarar sem bragðast alveg sérstaklega vel.

Hráefni

Sósa – gott að byrja á sósunni þar sem hún má gjarnan standa

  • ½ dl fersk persilja/steinselja
  • 1 tsk dill – þurrkað
  • 1 msk capers
  • ½ dl graslaukur
  • 1 dl majónes
  • Rúmlega ½ dl ab-mjólk
  • 4 – 6 dropar græn tabasco sósa (green pepper sauce)
  • Ögn af saltflögum
  • Nýmalaður pipar

Fiskborgarar

  • 200 – 250 g ýsa – söxuð eða skorin í mjög smáa bita
  • 200 – 250 g lax – saxaður eða skorinn í mjög smáa bita
  • Rúmlega ½ dl persilja/steinselja
  • Börkur af u.þ.b. ¼ lífrænni sítrónu – rifinn fínt
  • ½ dl rasp
  • Meðlæti: Salatblöð

Laukhringir

  • 50 g hveiti
  • 1 msk maizenamjöl
  • 1 eggjarauða
  • ¾ – 1 dl vatn
  • 1 – 1½ gulur laukur

Verklýsing

Sósa

  1. Allt hráefni sett í matvinnsluvél og maukað saman
  2. Gott að láta sósuna standa og jafna sig aðeins

Fiskborgarar

  1. Fiskur saxaður smátt með hnífi eða í matvinnsuvél
  2. Öllu blandað saman – með fingrunum og 100 – 120 g kúlur búnar til
  3. Fiskborgarar mótaðir og steiktir/grillaðir í u.þ.b. 2 – 3 mínútur á hvorri hlið á rúmlega meðalhita þannig að þeir fái fallegan lit

Laukhringir – djúpsteiktir

  1. Hveiti, vatni, maizenamjöli og eggjarauðu blandað saman í skál
  2. Laukur skorinn í sneiðar
  3. Olía (sólblómaolía) sett í djúpa pönnu og hituð – laukhringjum dýft í deigið og þeir settir varlega ofan í olíuna og steiktir þar til fallegur litur er kominn á þá – gott að snúa þeim einu sinni.  Laukhringir teknir upp og lagðir á eldhúspappír.  Til að fá þá ennþá meira ,,djúsí“ má dýfa þeim aftur í deigið og djúpsteikja þá aftur

Samsetning:  Hamborgarabrauð hituð/ristuð og sósa sett neðst. Fiskborgari lagður ofan á, ásamt salati og laukhringjum og að lokum kemur sósa.  Gott að bera fram með ofnsteiktum kartöflum eða sætum kartöflum.

Sósa útbúin


Fiskborgarar í vinnslu

Laukhringir í vinnslu

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*