Súkkulaðipavlova með kókosbollurjóma og þristasósu
Uppruni
Þessi sykursæta kaka er heimatilbúin og þá sérstaklega fyrir sælgætisfólkið á heimilinu. Berin eru svona til að friða samviskuna aðeins. Þessi klárast alltaf þegar hún er á boðstólnum.
Forvinna
Hægt að baka botninn nokkrum dögum áður – afgangurinn er lítið mál.
Hráefni
Marengs
- 4 eggjahvítur (130 – 150 g)
- Tæp 1 tsk sítrónusafi
- 2½ – 3 dl sykur
- 60 g suðusúkkulaði – brætt
Fylling
- 4 kókosbollur (8 litlar)
- 5 dl rjómi
Sósa
- 10 litlir þristar
- ¼ – ½ dl matreiðslurjómi/rjómi
Skraut
- Skreytt með ávöxtum eða meiri gotteríi
Verklýsing
Marengs
- Ofn hitaður í 135° – 140°C (stillt á blástur)
- Eggjahvítur þeyttar hálfstífar og sítrónusafa bætt við
- Sykrinum bætt út í smám saman og blandan þeytt í stífa toppa
- Suðusúkkulaði brætt og sett út í með sleikju. Blanda aðeins saman – þannig að rákir myndist. Ath. ef súkkulaðið er brætt í örbylgjuofni er ágætt að gera það í áföngum og hræra í öðru hvoru
- Dreift á smjörpappír – mynda hring
- Bakað í 1 klukkustund. Látið standa í ofninum yfir nótt
Rjómafylling
- Rjómi þeyttur og kókosbollum blandað saman við – dreift yfir marengsinn
Sósa
- Vatn sett í pott, skál sett ofan á pottinn og vatnið hitað. Varist að láta vatnið bullsjóða þar sem það getur skvetst í skálina. Þristar settir í skálina ásamt rjóma – látið bráðna
- Hrært í öðru hvoru þar til þristarnir hafa bráðnað og blandast saman við rjómann
- Sósan látin kólna aðeins – annars er hætta á að rjómafyllingin bráðni
- Sósunni hellt yfir og kakan skreytt