Kjúklinga Milanese eins og hann gerist bestur
Uppruni
Hér er á ferðinni eðalgóður og safaríkur kjúklingaréttur úr smiðju Hilmars. Ég hef aldrei verið mikil schnitzelkona en fannst þessi útgáfa hljóma vel. Fyrsta mál á dagskrá var því að éta ofan í mig einhverjar fullyrðingar um að schnitzel væri vont og næla í uppskriftina. Kannski er þetta eitt af því sem breytist í lífinu… matarsmekkurinn. Rétturinn sló heldur betur í gegn og vel borðaður af ungum sem öldnum. Það sem spillti ekki fyrir var að það er gaman að elda réttinn og í okkar tilviki prófuðum við hann þegar við vorum með 15 manns í mat. Það gekk alveg glimrandi vel og má segja að hann henti vel þegar von er á mörgum í mat.
Forvinna
Kjúklinginn má steika aðeins áður og þá er bara eftir að skella honum í ofninn 25 mínútum áður en hann er borinn á borð. Kartöflumúsin hennar mömmu, sem passar vel með, má einnig gera fyrr um daginn.
Hráefni
- 3 stórar kjúklingabringur (820 – 850 g) – láta þær ná stofuhita
- Salt og pipar
- Rúmlega 1 dl rasp
- 1 tsk hvítlauksduft
- 3 msk parmesanostur – rifinn fínt
- 1 egg – pískað
- Smjör og olía til steikingar
- 6 – 9 litlar mozzarella kúlur – skornar í tvennt eða þrennt
Verklýsing
- Mjög gott að taka bringurnar út eitthvað áður svo að þær nái stofuhita. Hver kjúklingabringa skorin í tvennt þversum (þannig að hún verður þynnri). Salti og pipar stráð yfir
- Ofninn stilltur á 180°C (yfir- og undirhiti)
- Raspi, hvítlauksdufti og parmesanosti blandað saman í skál
- Egg pískað vel saman með gaffli í skál (betra að hvítan blandist vel saman við rauðuna)
- Panna hituð. Smjörbiti og steikingarolía sett á pönnuna
- Gott að setja hluta af raspblöndunni í skál við hliðina á eggjaskálinni (bætt svo reglulega við – koma síður kekkir í raspblönduna). Fyrst er bringunum dýft í eggjahræruna og næst í raspblönduna. Bringurnar settar á heita pönnuna og steiktar á hvorri hlið þannig að fallegur litur myndast. Ath. mér finnst gott að steikja á lítilli pönnu tvær og tvær sneiðar í einu. Eftir tvær umferðir er oft komið brennt rasp í pönnuna sem hefur orðið eftir. Þá er auðvelt að skola pönnuna og byrja aftur með hreina. Alls ekki nauðsynlegt en mér finnst fallegri litur koma á bringurnar með þessu móti
- Bringunum raðað í eldfast fat eða í ofnskúffu. 3 – 4 mozzarellasneiðum raðað á hverja og eina bringu og fatið sett inn í ofninn í 23 – 25 mínútur. ATH. tímalengdin er svolítið háð stærð bringanna. Tilvalið að skera í eina bringuna og athuga hvort hún sé steikt í gegn
Meðlæti: Gott með fersku salati og kartöflumús eins og kartöflumúsin hennar mömmu. Fyrir þá sem eru hrifnir af smjöri er upplagt að bjóða upp á brætt smjör. Ef þú villt gera extra vel við þig er kúrekasmjörið mjög gott með.













