Home » Kúrekasmjör

Kúrekasmjör

Eðal kúrekasmjör með kjöti og fiski

  • Servings: 5 - 6
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

 

Uppruni

Þessi uppskrift kemur úr smiðju Vigfúsar.  Um daginn þegar við vorum að elda kjúkling skellti hann í sína útgáfu af kúrekasmjöri sem þótti passa mjög vel með réttinum.  Kúrekasmjör er samsetning af smjöri og kryddi, sem er kannski ekki gott eitt og sér, en á vel með ýmsu kjöti og fiski.  Útgáfan hans Vigfúsar er aðeins öðruvísi þar sem hún er full af lauk sem er karamelseraður fyrst.  Skemmtileg útgáfa sem ég set hér inn til að halda hlutföllunum til haga.

Hráefni

  • 2 stórir gulir laukar – skornir í þunnar sneiðar
  • 100 g af íslensku smjöri
  • 2 msk dijon sinnep
  • 1 lífræn sítróna – allur safinn og börkur af ½ sítrónu
  • 2 hvítlauksrif – pressuð eða rifin
  • 1 msk þurrkað rósmarin
  • 1 – 1½ msk þurrkað coriander
  • 1 – 1½ msk þurrkað timjan
  • ½ tsk cayennepipar (má einnig nota ferskt chili – saxa það niður)
  • 2 msk capers – söxuð
  • 1 tsk paprikukrydd
  • ½ – 1 tsk whorsestersósa
  • Saltflögur
  • Vel af nýmöluðum svörtum pipar
  • 1 – 3 msk fersk steinselja.  Fallegt að skreyta líka með henni

 

Verklýsing

  1. Lauksneiðarnar steiktar upp úr smjörinu á meðalhita í 10 – 15 mínútur. Laukurinn er steiktur þar til hann verður fallega brúnleitur
  2. Afgangi af hráefninu bætt við á pönnuna og öllu blandað saman
  3. Sett í skál og borið fram

Á vel með: T.d. Tjúlluðum kjúlla Milanese, steiktum fiski eða á hamborgarann.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*