Home » Hægeldað nautakjöt með asísku ívafi

Hægeldað nautakjöt með asísku ívafi

Nautalund með austurlenskum keim

  • Servings: 3-4
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

 

Uppruni

Hver vill ekki prótein sem bragðast vel?  Uppskriftina fékk ég hjá Hilmari þegar upp kom sú hugmynd að útfæra þennan góða aðalrétt  sem smárétt í veislu. Kjötið er hægeldað og svo skorið niður í þunnar sneiðar.  Sósan með austurlenskum blæ er borin fram með.  Strangheiðarlega sætkartöflumúsin passar sérstaklega vel með.  Þennan rétt má heldur betur mæla með og þá sama hvort sem hann er borinn fram sem aðalréttur eða smáréttur.

Eldunaraðferð:  Nautakjötið hægelda ég í leirpottunum mínum en þeir eru alveg sérstaklega góðir til slíks brúks.  Verklýsingin hér fyrir neðan miðast við að notað sé lokað ílát sem þolir að fara í ofn. Ég kýs frekar þessa aðferð en ,,sous vide“ en það má einnig nota þá eldunaraðferð við að elda þennan rétt.

 

Hráefni

  • 600 – 800 g nautalund
  • Svartur pipar – mulinn yfir
  • Saltflögur

Sósa

  • 1 dl soja með græna lokinu
  • Rúmlega 1 tsk rifinn engifer
  • Rúmlega ½ dl kóríander ferskt – saxað
  • Kóriander – til skrauts

Skraut

  • Klettasalat
  • Kóríander

 

Verklýsing

  1. Ofninn stilltur á 75°C (Blásturstilling)
  2. Kjötið aðeins snyrt – sinar skornar frá. Kjöt þurrsteikt á öllum hliðum á mjög heitri pönnu eða á grilli.   Mikilvægt að hita grillið eða pönnuna mjög vel í báðum tilfellum .  Kjötinu er lokað á öllum hliðum
  3. Kjötið sett í Hönnupott (eða sambærilegan). Lokið sett á pottinn og inn í ofninn. Kjöthitamæli stungið í mitt kjötið – yfirleitt látum við kjötið vera inni í klukkustund áður en við setjum hitamælinn í en það má alveg gera það strax
  4. Sósa:  sojasósa, engifer og kóriander blandað saman
  5. Þegar kjötið er komið í 52°C er hitinn lækkaður í 60°C og þar getur kjötið verið nánast endalaust án þess að steikjast of mikið.  Kjötið má alveg fara upp í 55°C. Gera má ráð fyrir 2 – 3 klukkustundum í eldunartíma
  6. Klettasalati dreift yfir kjötbretti
  7. Kjötið skorið í þunnar sneiðar. Gott að hella soðinu sem myndast í botninum yfir kjötið (má líka setja það í sósuna eða í sætkartöflustöppuna).  Þar sem kjötið hefur eldast í rólegheitum er ekki þörf á að láta það jafna sig heldur skorið strax í sneiðar. Pipar mulinn yfir kjötið ásamt ögn af saltflögum
  8. Aðeins af sósu dreift yfir kjötið – smekksatriði hversu mikið af sósunni hver og einn notar

Borið fram með:  Strangheiðarlegri sætkartöflumús

Sósa í vinnslu

Soði úr kjötinu bætt við strangheiðarlega sætkartöflumús

Smáréttur í glasi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*