Home » Strangheiðarleg sætkartöflumús

Strangheiðarleg sætkartöflumús

Sætkartöflumús með fetaosti

  • Servings: 5-6
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

 

Uppruni

Hér kemur uppskrift að góðu meðlæti.  Einfalt og gott úr smiðju Hilmars sem passar vel með kjúklingi eða rauðu kjöti eins og t.d. nautakjöt með asísku ívafi.  Þægilegur réttur sem má gera deginum áður en hann er borinn fram og geymist vel í kæli.

 

Hráefni

  • 3 stórar sætar kartöflur (u.þ.b. 1600 g)
  • 200 g fetakubbur
  • 25 – 30 g smjörklípa
  • ½ msk hunang
  • ½ tsk gróft salt
  • Soð af kjötinu – má sleppa

 

Verklýsing

  1. Kartöflurnar soðnar með hýðinu í 15 – 20 mínútur. Vatni hellt af og kartöflurnar aðeins látnar kólan áður en þær eru skrældar
  2. Kartöflurnar maukaðar og settar í pott ásamt muldum fetaosti, smjöri og hunangi
  3. Blandan hituð og söltuð
  4. Ef soð kemur af kjöti, eins og hægeldaðri nautalund, er upplagt að hella umframsoði saman við

 

 

Soði úr nautakjöti hellt út í 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*