Home » Alls konar eggjaréttir fyrir litlu börnin

Alls konar eggjaréttir fyrir litlu börnin

Eggjaréttir

  • Servings: 1
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Hugmyndin

Egg eru holl, góð og einföld til að elda fyrir litlu börnin. Það er gaman og einfalt að gera alls konar útgáfur af eggjaréttum til að nýta það sem er til í ísskápnum eða bara til að prófa eitthvað nýtt fyrir barnið. Eitt má hafa í huga að börnin geta alveg fengið ógeð á eggjum svo ég mæli með að gefa barninu ekki eggjarétt margar máltíðir í röð.

Geymsla 

Ef barnið getur ekki lokið við skammtinn sinn má heldur betur skella afganginum í ísskápinn og geymist hann vel í 1-2 daga. Tilvalið til að taka í nesti, borða í hádegismat daginn eftir eða bara sem síðdegishressing.

Hugmyndir

Hrært egg

  • 1 egg
  • 1 msk olía/smjör

Harðsoðið egg

  • 1 egg

Hrært egg með spínati

  • 1 egg
  • 1 msk olía/smjör
  • ½ dl spínat

Eggjalengjur

  • 1 egg
  • 1 msk olía/smjör

Hrært egg með brokkólí

  • 1 egg
  • 1 msk olía/smjör
  • ¾ dl gufusoðið brokkolí

Hrært egg með sveskjumauki

  • 1 egg
  • 1 msk olía/smjör
  • 1 msk sveskjumauk (heimatilbúið eða keypt)

Verklýsing

Hrært egg

  1. Olía hituð á pönnu
  2. Eggið sett í skál og pískað með gaffli
  3. Eggjablöndunni  hellt á heita pönnu og hrært með sleikju þar til hún hefur eldast í gegn. Best að hafa bitana ekki of litla svo það sé auðveldara fyrir barnið að grípa þá
  4. Látið kólna og sett fyrir framan barnið

 

Harðsoðið egg

  1. Egg sett í pott
  2. Vatni hellt í pottinn þangað til yfirborðið er u.þ.b. 1 cm frá egginu
  3. Vatnið hitað að suðu
  4. Þegar suðan er komin upp er tíminn stilltur á 6 mínútur
  5. Pottur tekinn af hellunni og vatnið hellt af
  6. Eggið sett í kalt vatn og leyft að kólna
  7. Skurnin tekin af egginu og skorið niður í sneiðar fyrir 9 mánaða og eldri en skorið í þríhyrningslaga lengjur fyrir 6 mánaða og eldri
  8. Sett fyrir framan barnið

 

Hrært egg með spínati

  1. Olía hituð á pönnu
  2. Eggið sett í matvinnsluvél ásamt spínatinu
  3. Eggjablöndunni hellt á heita pönnu og hrært með sleikju þar til hún hefur eldast í gegn. Best að hafa bitana ekki of litla svo það sé auðveldara fyrir barnið að grípa þá
  4. Látið kólna og sett fyrir framan barnið

 

Eggjalengjur

  1. Olía hituð á pönnu
  2. Eggið sett í skál og pískað með gaffli
  3. Eggjablöndunni hellt á heita pönnuna og látið standa í 1-2 mínútur eða þangað til hún hefur eldast í gegn
  4. Eggjapönnukökunni er snúið við og látið standa í 1-2 mínútur eða þangað til það hefur eldast báðum megin
  5. Eggjapönnukakan er færð yfir á disk eða bretti og skorin niður í lengjur
  6. Látið kólna og sett fyrir framan barnið

 

Hrært egg með brokkólí

  1. Olía hituð á pönnu
  2. Eggið sett í skál ásamt brokkólíinu og pískað með gaffli
  3. Eggjablöndunni hellt á heita pönnu og hrært með sleikju þar til hún hefur eldast í gegn. Best að hafa bitana ekki of litla svo það sé auðveldara fyrir barnið að grípa þá
  4. Látið kólna og sett fyrir framan barnið

 

Hrært egg með sveskjumauki – tilvalið í morgunmat

  1. Olía hituð á pönnu
  2. Eggið sett í skál og pískað með gaffli
  3. Eggjablöndunni  hellt á heita pönnu og hrært með sleikju þar til hún hefur eldast í gegn. Best að hafa bitana ekki of litla svo það sé auðveldara fyrir barnið að grípa þá
  4. Eggin eru sett í skál ásamt sveskjumauki og blandað vel saman
  5. Látið kólna og sett fyrir framan

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*