Home » Pikklaður jalapeno – sem bragð er af

Pikklaður jalapeno – sem bragð er af

Skemmtilegt og einfalt meðlæti

  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Ef þú hefur áhuga á að krydda líf þitt á einfaldan hátt er hér ein leið.  Þessi uppskrift er sniðug ef þú átt jalapeno (helst íslenskan) og vilt lengja líftíma hans.  Þá er þetta ein geymsluaðferð og þú nýtur hans lengur.

 

Hráefni

  • 2 jalapeno – skorinn í þunnar sneiðar
  • ¼ dl hvítvínsedik
  • ¼ dl vatn
  • 1 hvítlauksrif – saxað smátt eða pressað
  • 2 tsk sykur
  • 1 tsk salt

Verklýsing

  1. Jalapenosneiðarnar settar í krukku/skál – magn af fræjum, sem fá að fylgja með, er smekksatriði (ef meira þá sterkara)
  2. Vatn, sykur, hvítvínsedik, hvítlaukur og salt sett í pott – látið ná suðu. Hellt ofan í krukku/skál með loki
  3. Látið standa í a.m.k. 8 mínútur

Gott með: t.d. hamborgaranum, pizzunni, fahitas, tortillum, á samlokuna, kjúllann eða bara þegar mann langar að gefa matnum sterkara bragð

Geymsla:  Geymist ágætlega í lokuðu íláti í kæli

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*