Home » Heit og sæt chilihunangssósa

Heit og sæt chilihunangssósa

Hot honey chili sósa

  • Servings: /Magn: 1 krukka
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

 

Uppruni

Hér kemur ein sósa – alveg sérstaklega heit og sæt.  Ég vældi út uppskriftina hjá Vigfúsi tengdasyni mínum eftir að hafa fengið að smakka.  Hún er góð negla á pizzuna og skilst mér að pizzur, sem keyptar eru tilbúnar, kosti sérstaklega mikið ef á þeim er chili hot sósa – sel það ekki dýrara en ég keypti.  Hún féll svo vel í kramið hjá stráknum mínum að hann setur hana á nánast allt sem hann borðar.  Ég skal alveg viðurkenna að hún passar líka vel með grillaða silungnum en VARÚÐ… sósan er sterk.

Hráefni

  • 2½ dl hunang
  • 2 msk eplacíder
  • 3 fersk chili – skorin í ræmur (því meira af kornum þeim mun sterkari verður sósan)
  • 1 msk þurrkaðar chiliflögur
  • 1 msk Sirachasósa

Verklýsing

  1. Allt sett í pott og látið malla í 30 – 40 mínútur.  Ekki láta sjóða (þá verður hún of þykk)
  2. Sósunnin hellt í skál/krukku í gegnum sigti þannig að chilið verði eftir í sigtinu.  Geymist mjög vel í lokuðu íláti

Á vel með: Grilluðum silung, Kúri súrdeigspizzur eða heimagerða pizzu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*