Home » Saðsöm og góð rauðbeðukaka

Saðsöm og góð rauðbeðukaka

Rauðbeðukaka með valhnetum og rjómaostakremi

  • Servings: Magn: 10 - 12 sneiðar
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Fann þessa uppskrift í sænsku kökublaði og langaði að prófa.  Hún minnir aðeins á gulrótarköku og er skemmtileg tilbreyting.  Flott kaka sem er bæði saðsöm og góð.  Það er gaman að skreyta hana með rauðbeðudufti sem má búa til áður og eiga í lokaðri krukku – upplagt að klippa eitthvað skemmtilegt út, leggja það yfir kökuna og strá síðan duftinu yfir með sigti.

 

Hráefni

  • 250 g forsoðnar rauðbeður
  • 4 dl hveiti
  • 3 dl sykur
  • 1 msk kanill
  • 1½ tsk matarsódi
  • 1 tsk steytt kardimomma
  • 1 tsk vanillusykur
  • ½ tsk engifer – steytt
  • ½ tsk salt
  • 1 dl ananas – saxaður – safinn látinn renna af
  • 1½ dl olía
  • 2 egg
  • 2 dl valhnetur – saxaðar gróft
  • 2 dl kókosmjöl

Krem

  • 100 g smjör – við stofuhita
  • 3 dl flórsykur
  • 200 g rjómaostur
  • 1 tsk vanillusykur

Skraut – má sleppa

 

Verklýsing

  1. Rauðbeðurnar maukaðar í matvinnsluvél (u.þ.b. 2 dl).  Einnig er hægt að kaupa hráar og sjóðar þær eða baka í ofni  – það má gera ráð fyrir að bökunartíminn sé 50 – 60 mínútur á 180°C (fer svolítið eftir stærð þeirra en ágætt að stinga prjóni í gegn til að kanna hvort þær séu tilbúnar)
  2. Ofninn stilltur á 175°C (yfir og undirhiti). Bökunarpappír settur í botninn á lausbotna 24 cm kökuformi
  3. Þurrefni sett í skál ásamt olíu, ananas og rauðbeðumaukinu – hrært saman. Eitt egg sett í einu og hrært þar til blandan verður slétt.  Valhnetum og kókosmjöli bætt við í lokin – blandað saman með sleikju
  4. Blandan sett í form og bakað í miðjum ofni í 45 – 50 mínútur eða þar til kakan er bökuð í gegn. Ágætt að nota prjón og stinga í – ef ekkert deig loðir við hann er kakan tilbúin
  5. Kakan látin kólna.  Smelluformið tekið og kakan sett á kökudisk

Krem 

  1. Smjör og flórsykur þeytt saman þar til allir smjörbitar eru horfnir og blandan er slétt og fín
  2. Rjómaosti og vanillusykri blandað saman við – þeytt
  3. Kakan smurð með kreminu

 

Geymsla:  Kakan geymist ágætlega við stofuhita en þá er betra að setja kökulok yfir svo að hún harðni ekki

 

Kaka í vinnslu

Rauðbeðuduft

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*