Appelsínusósa - góð með kjöti
Uppruni
Þessi sósa kemur úr smiðju Vigfúsar og er hún bæði einföld og sérstaklega góð. Hún á mjög vel við með andabringum og er algjörlega óhætt að mæla með henni með ýmsu kjöti. Hún er góð daginn eftir sama hvort hún er borin fram heit eða köld.
Hráefni
- Safi úr 3 appelsínum (2½ dl) – kjötið sigtað frá
- 1 msk sojasósa
- 1 tsk kjötkraftur (t.d. andakraftur eða nautakraftur)
- 2½ dl rjómi
- Salt og pipar
- Vökvi, sem kemur af kjöti, eða ögn af andafitu ef hún er í boði – má sleppa
Verklýsing
- Appelsínusafinn er sigtaður ofan í pott og suðan látin koma upp. Mikilvægt að láta sýruna sjóða vel úr en vegna uppgufunar minnkar magnið og safinn þykknar aðeins. Það má gera ráð fyrir að vökvinn rýrni um helming
- Sojasósu, kjötkrafti og rjóma blandað saman við og suðan látin koma upp. Sósan er frekar þunn en þykknar ef hún fær að malla aðeins. Þeir sem vilja hafa sósur mjög þykkar geta sett sósujafnara út í (1- 2 msk) og látið suðuna koma upp
Geymsla: Geymist ágætlega í lokuðu íláti í kæli.
Hér er safinn aðeins dekkri þar sem verið er að nota blóðappelsínur












Pingback: Andabringa a la Vigfús
ÓÓ èg hef sennilega gert það sjálf SORRY 🎅
❤️