Heimagerður ricottaostur
Uppruni
Heimagert ricotta er eitthvað sem er tiltölulega auðvelt að galdra fram sjálfur…. fá hráefni og er tiltölulega þægilegt í vinnslu. Hér kemur uppskrift sem ætti ekki að klikka en ég myndi láta renna vel af ostinum ef hann á að vera fylling í pasta. Ricottaostinn má nota í ýmsa matargerð og bakstur. Hann er góður á pizzuna og það er sáraeinfalt að útbúa góða ídýfu úr honum með því að bæta við t.d. kryddjurtum og hvítlauk.
Hráefni
- 1 lítri nýmjólk
- 1 dl rjómi
- ¼ tsk salt
- 2 – 4 msk sítrónusafi eða eplaedik
Verklýsing
- Mjólk, rjómi og salt sett í pott og hitað rólega upp í 80°C. Upplagt að nota hitamæli til að fylgjast með hitastiginu
- Hitinn lækkaður og sítrónu/ediki bætt við – hrært stöðugt í 3 – 5 mínútur. Mjólkurblandan byrjar að ysta og verður kekkjótt. Aðeins meira af sýrunni bætt við og hrært
- Blandan látin kólna aðeins og síðan hellt yfir í sigti með hreinni grysju/viskastykki í – látið renna af í a.m.k. 30 mínútur – ekki þrýsta ofan á ostinn (þá klessist hann). Því lengur sem hann er látinn standa þeim mun þurrari verður hann
Geymsla: Geymist ágætlega í lokuðu íláti í kæli










