Home » Töfrandi góður eftirréttur

Töfrandi góður eftirréttur

Falleg kaka sem einfalt er að töfra fram

  • Servings: 7 - 9
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Ef þú átt lausar örfáar mínútur og langar að töfra fram góðan köku …. þá er uppskriftin komin.  Kakan þarf að fá að standa í u.þ.b. 3 klukkustundir (svo hún leki ekki).  Ef tíminn er naumur er betra að nota stóra, djúpa skál (eða nokkrar litlar).  Fyrir lakkrísfólkið eru nýju bollurnar frá Sanbó algjört æði en ef lakkrísinn á ekki upp á pallborðið eru kókosbollurnar upplagðar í þennan dýrindis eftirrétt.

Hráefni

Ath. Miðað er við 20 cm smelluform en hlutföllin í sviganum miðaðast við 24 cm smelluform

  • 125 g makkarónukökur (160 g)
  • 10 stk lakkrísbollur eða kókosbollur (12 stk)
  • 2½ dl rjómi (4 dl)
  • 250 g grísk jógúrt eða sýrður rjómi (375 g)
  • 2 tsk vanillusykur (3 tsk)
  • 2 msk flórsykur (3 msk)
  • Fersk ber
  • Flórsykur til að sigta yfir – má sleppa

Verklýsing

  1. Makkarónkökurnar muldar gróft
  2. Hringurinn á smelluforminu settur á kökudisk
  3. Makkarónukökumulningurinn settur ofan í og dreift jafnt (fyrir sérrífólkið má hella nokkrum dropum yfir)
  4. Bollurnar lagðar ofan á með jöfnu millibili – ágætt að ýta þeim aðeins niður
  5. Rjómi þeyttur með vanillusykri og flórsykri.  Grískri jógúrt bætt saman við með sleikju. Blöndunni hellt ofan í formið og yfirborðið sléttað
  6. Kökudiskurinn settur inn í kæli og kakan látin standa þar í u.þ.b. 3 klukkustundir
  7. Hnífur eða spaði notaður til að losa kökuna frá forminu og því lyft upp
  8. Skreytt með berjum og flórsykri sigtað yfir (má sleppa)

 

 

Með flórsykri

Með súkkulaðiskrauti

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*