Kjúklingabringur - einfalt og gott
Uppruni
Kjúklingur er vinsæll á mínu heimili enda stútfullur af próteini. Ég elda oft úrbeinuð kjúklingalæri í pottunum mínum en sjaldnar kjúklingabringur. Undanfarið höfum við gert meira af því en hún er erfið línan á milli þess að bringurnar séu safaríkar og nægjanlega eldaðar og svo að þær séu ofeldaðar. Við notum pottana góðu og eldum bringurnar með lokinu á svo að þær haldist safaríkari en um leið verður steikingartíminn lengri. Möguleikarnir eru margir en mér finnst frábært að borða þær með fersku og brakandi salati en fólkinu mínu finnst sósan og hrísgrjónin ómissandi. Það er líka frábært að eiga afgang af kjúklingabringum og nota þær t.d. í kjúklingasalat, kjúklingasamlokur, eins og ég man eftir þeim, eða í Caesar salatið.
Barnvæn sósaHráefni
Verklýsing
- Ofninn stilltur á 150°C (blásturstilling)
- Kjúklingabringur kryddaðar og lagðar í pottinn
- Lokið sett á og eldað í 45 mínútur í ofninum. Eldunartíminn er háður stærð og þykkt bringanna en ef hver bringa er tæplega 200 g má reikna með 50 mínútum. Best er að stinga kjöthitamæli í eina bringuna til þess að vita betur hvenær hún er tilbúin – geri það oft þegar 40 mínútur eru komnar. Þegar hann sýnir 72°C – 74°C tek ég pottinn út og læt kjúklinginn standa þar til kjötið er komið í 75°C – 77°C
- Bringurnar teknar úr pottinum og skornar í sneiðar. Gott að ausa aðeins af soðinu yfir
Barnvæn sósa
- Vatn og kjúklingakraftur pískað saman í potti og hita náð upp
- Sósujafnari settur út í og suðan látin koma upp. Rjóma, kjúklingakryddi bætt við og í lokin er vökvanum úr pottinum hellt í
Borðað með fullt af salati og/eða hrísgrjónum.













Pingback: Frábært caesar salat eldað heima – hanna.is