Ferskt meðlæti eða bara gott eitt og sér
Uppruni
Þessi hollustubomba er upplögð fyrir magann þegar gera á vel fyrir líkamann. Meðlæti sem á vel við með grillmatunum eða fiskinum og ef einhver er í stuði fyrir smá óhollustu þá setur þessi blanda pylsuna með brauði upp á annað þrep. Yfirleitt sleppi ég möndlunum en þær gera salatið aðeins orkumeira og saðsamara 🙂
Hráefni
Dressing
- 1 tsk cumin
- 3 msk sítrónusafi
- 2 msk olía
- 2 stórt hvítlauksrif – pressað eða saxað fínt
- Salt og pipar
Salat
- 1 blómkálshöfuð (450 – 500 g) – hreinsað og stilkurinn skorinn af
- U.þ.b. 140 g rauðkál – skorið í sneiðar
- Salat, grænkál og/eða steinselja – saxað fínt 2 – 3 dl
- Hluti af granatepli – u.þ.b. 1½ dl granateplafræ
- 2 – 4 msk fersk mynta – ef hún er til
- Möndluflögur ristaðar á pönnu – má sleppa
Verklýsing
- Dressing: Öllu blandað saman í litla skál
- Blómkál skorið í litla bita og maukað fínt í matvinnsluvél þar til það verður á stærð við kúskús. Sett í stóra skál
- Rauðkálið skorið í litla bita og maukað fínt. Sumir kjósa frekar að skera rauðkálið í þunnar sneiðar sem er líka gott
- Salat/grænkál og/eða steinselja sett í matvinnsluvél og látið verða fínhakkað – blandað saman við blómkálsmaukið
- Gott að bæta við saxaðri ferskri myntu. Möndluflögur ristaðar fyrir þá sem kjósa að hafa þær með
- Dressingunni hellt yfir og að lokum er myntu og möndluflögum dreift yfir
Meðlæti: Á vel við með kjöti eða er líka bara fínt eitt og sér
Geymsla: Geymist ágætlega í lokuðu íláti í kæli













